Á miðvikudaginn næstkomandi, þann 11. febrúar, verða haldnir tónleikar í Tjarnarsal í tilefni Kirkjulistahátíðar en alls verða þrír viðburðir tengdir hátíðinni haldnir hér á Suðurnesjum.
Á tónleikunum leiða Gissur Páll Gissurarson og Árni Heiðar Karlsson saman hesta sína í bráðskemmtilegu, fróðlegu og umfram allt fallegu ferðalagi um heim trúar og ástar í sönglögum víða að. Það er hægt að lofa ógleymanlegri kvöldstund í Vogum á Kirkjulistahátíð.
Tónleikarnir hefjast kl 20:00 og er aðgangur ókeypis. Hvetjum við öll til að mæta og njóta.