Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga óskar eftir tilnefningum vegna umhverfisverðlauna 2025.
Ábendingar um snyrtilegar húseignir og garða eða framtak í þágu náttúrunnar, sem vert er að nefndin veiti viðurkenningar fyrir skal senda á Umhverfis- og skipulagssvið sveitarfélagsins á netfangið usk@vogar.is
Tilnefningarnar taka til garðræktar, snyrtilegs og fallegs frágangs mannvirkja og góðrar umgengni við náttúruna. Þær geta átt við heimili, bæi, frístundarhús, fyrirtæki og félagasamtök.
Í fyrra fengu eigendur Vogagerðis 14 verðlaun fyrir vel hirtan og fallegan garð. Ásamt Stóru-Vogaskóla fyrir landgræðslustarf sitt í fjóra áratugi.