Hreinsunardagar

Hreinsunardagar í Vogum eru hafnir og standa til 15. júní. Íbúar eru hvattir til að taka til á lóðum sínum og í nærumhverfi.

Gámur fyrir garðaúrgang er við Iðndal 12.

Minnum á að:

  • Jarðveg og garðaúrgang má losa í gám við Iðndal 12. Munið að tæma poka.
  • Garðaúrgangur sem skilinn er eftir við lóðarmörk verður tekinn hjá þeim sem þá þjónustu þurfa að því skilyrði að hann sé snyrtilega frágenginn í pokum.
  • Íbúar Vatnsleysustrandar eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 440-6200 og óska eftir því að pokar með garðaúrgangi verði hirtir.
  • Gámasvæðið verður opið á hefðbundum tíma og grenndargámar eru við tjaldsvæðið fyrir frekari flokkun en við minnum fólk á mikilvægi þess að flokka allt rusl.

    Opnunartími gámasvæðis Kölku við höfnina verður sem hér segir:
    • þriðjudaga kl. 17-19
    • fimmtudaga kl. 17-19
    • föstudaga kl. 17-19
    • sunnudaga kl. 12-16
  • Hægt verður að óska eftir að láta sækja járn s.s. bílhræ og annað sambærilegt. Beiðnir fara í gegnum skrifstofu í síma 440-6200.