Knarrarneskirkja, Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd hlaut umhverfisviðurkenningu sveitarfélagsins Voga 2023

Knarrarneskirkja, er reist af hjónunum, Birgi Þórarinssyni og Önnu Rut Sverrisdóttur ábúendum á Minna-Knarrarnesi. Kirkjan er heimiliskirkja. Hún var vígð af Karli Sigurbjörnssyni biskup 8. ágúst 2021. Biskup Íslands Agnes M Sigurðardóttir setti kirkjunni máldaga og tilheyrir kirkjan Þjóðkirkjunni þó hún sé í einkaeigu. Helgihald og kirkjulegar athafnir fylgja reglum Þjóðkirkjunnar.

Kirkjan er byggð í 19. aldar stíl. Arkitekt er Óli Jóhann Ásmundsson, yfirsmiður var Ásgeir Þórisson Reykjanesbæ. Ólafur Sigurjónsson Forsæti Flóahreppi smíðaði innréttingar og sáluhlið. Umhverfis kirkjuna er hlaðinn tvöfaldur steinveggur úr grjóti. Birgir Þórarinsson hlóð vegginn. Allir listmunir kirkjunnar eru gerðir af tveimur Úkraínskum kirkjulistamönnum þeim Andrii Kovalenko lismálara og Mykhailo Kozyr útskurðarmeistara.

Í viðurkenningu umhverfisnefndar segir: Einstaklega falleg kirkja í 19. aldar stíl, sem prýðir jörðina að Minna-Knarrarnesi en þar er snyrtimennska til fyrirmyndar í alla staði. Umhverfisnefnd óskar hjónunum að Minna-Knarrarnesi innilega til hamingju með þetta einstaka framtak og þakkar fyrir þær ábendingar sem nefndinni bárust.