Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Voga 2023

Hvassahraun 27 fékk viðurkenningu í fyrra.
Hvassahraun 27 fékk viðurkenningu í fyrra.

Umhverfisnefnd sveitarfélagsins Voga óskar eftir tilnefningum vegna umhverfisverðlauna 2023.

Ábendingar um snyrtilegar húseignir og garða eða framtak í þágu náttúrunnar, sem vert er að nefndin veiti viðurkenningar fyrir skal senda á Umhverfis- og skipulagssvið sveitarfélagsins á netfangið byggingarfulltrui@vogar.is

Tilnefningarnar taka til garðræktar, snyrtilegs og fallegs frágangs mannvirkja og góðrar umgengni við náttúruna. Þær geta átt við heimili, fyrirtæki og félagasamtök.