Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Voga 2022

Umhverfisnefnd sveitarfélagsins Voga óskar eftir tilnefningum vegna umhverfisverðlauna 2022.

Ábendingar um snyrtilegar húseignir og garð eða framtak í þágu náttúrunnar, sem vert er að nefndin veiti viðurkenningar fyrir skal senda á sviðstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs byggingarfulltrui@vogar.is

Tilnefningarnar taka til garðræktar, snyrtilegs og fallegs frágangs mannvirkja og góðrar umgengni við náttúruna. Þær geta átt við heimili, fyrirtæki og félagasamtök.

Tekið er við tilnefningum til kl. 15.00 mánudaginn 8. ágúst 2022.