Ellen Lind Ísaksdóttir íþróttamaður Sveitarfélagsins Voga 2021

Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga velur íþróttamann sveitarfélagsins á hverju ári og veitir einnig hvatningarverðlaun í samræmi við reglugerð vegna kjörs á íþróttamanni ársins. 

Auglýst er eftir tilnefningum í nóvember og að þessu sinni bárust tvær tilnefningar til íþróttamanns ársins og fjórar tilnefningar til hvatningarverðlauna. 

Ellen Lind Ísaksdóttir og Unnar Ari Hansson voru tilnefnd til íþróttamanns ársins og ákvað nefndin að veita Ellen Lind titilinn. Fjórir drengir voru tilnefndir til hvatningarverðlauna. Aron Kristjánsson fyrir dans, Jónatan Örn Sverrisson fyrir knattspyrnu, Mikael Árni Friðriksson fyrir knattspyrnu og Patrekur Unnarsson fyrir knattspyrnu. 
Að auki var Ungmennafélaginu Þrótti veitt sérstök viðurkenning fyrir góðan árangur meistaraflokks karla í knattspyrnu á árinu. 

 

Ellen Lind Ísaksdóttir sigraði í keppninni um sterkustu konu Íslands þriðja árið í röð sumarið 2021. Það afrek hefur aðeins einni konu tekist áður og verður spennandi að sjá hvort Ellen takist að slá metið árið 2022.

Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri sagði þetta meðal annars um Ellen á athöfninni:

"Ellen Lind er alin upp í Grafarvogi en hálfa ævi sína hefur hún verið búsett í Vogum og má með sanni segja að hennar hjarta slái fyrir þennan bæ og mun hún seint flytja héðan. Ellen byrjaði sinn íþróttaferil í fótbolta hjá Fjölni 7 ára gömul og æfði þar til hún varð 14 ára. Einnig æfði hún körfubolta um skeið.+

En það var ekki fyrr en árið 2018 sem hún kynntist aflraunum og þá var ekki aftur snúið og hafði hún þá fundið sína íþrótt. Sama ár lenti hún í þriðja sæti í keppninni um sterkustu konu Íslands. Árið 2019 landaði hún svo sigrinum. Árið eftir bar hún einnig sigur úr býtum og á þjóðhátíðardaginn árið 2020 var hún sæmd titlinum „Stálkonan“ eftir að hafa sigrað þá keppni í þyngdarflokkinum +75 kg. Í ár tók hún enn á ný sigurinn og er hún eina konan sem hefur unnið sér inn titilinn „Sterkasta kona Íslands“ þrjú ár í röð.

Ellen er frábær fyrirmynd í alla staði enda bæði dugnaðarforkur með meiru og með hjarta úr gulli. Hún er ávallt brosandi og til í að hjálpa fólki og gerir alla daga betri fyrir þá sem á hennar vegi verða. Sem starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar er hún vel liðin af börnum og samstarfsfólki og einnig hafa mörg leikskólabörnin haft orð á því að þau ætli að vera dugleg að borða matinn sinn svo þau verði sterk eins og Ellen".

 

Unnar Ari Hansson var tilnefndur til íþróttamanns ársins. Unnar var einn af betri leikmönnum annarrar deildar og lék lykilhlutverk í sterku liði Þróttar sem vann sér sæti í fyrstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Unnar var einnig valinn í úrvalslið ársins í annarri deild en það er valið af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. Þá var Unnar kosinn leikmaður ársins á lokahófi Þróttar í haust en að því kjöri komu leikmenn, stjórnarmenn og starfsteymi meistaraflokks. Unnar er 24 ára er frábær fyrirmynd í félaginu og leiðtogi. Hann er miðjumaður og kom til Þróttar frá Leikni Fáskrúðsfirði fyrir tímabilið. Unnar skoraði tvö mörk í 21 leik með Þrótti sumarið 2021. Hann framlengdi á dögunum samning sinn við Þrótt til þriggja ára.

 

Aron Kristinsson hlaut hvatningarverðlaun. Aron er 14 ára og hefur æft dans sl. 15 ár í Danskompaníi. Hann æfir jazzballett, nútímadans, hip hop og commercial. Aron er mjög metnaðarfullur og hefur mikla ástríðu fyrir dansinum. Æfingar þar ganga fyrir öllu öðru hjá honum. Í febrúar sl. tók Aron þátt í undankeppni Dance World Cup sem fram fór í Borgarleikhúsinu og hlaut hópurinn hans gullverðlaun og sérstök dómaraverðlaun þar. Í ágúst keppti Aron svo ásamt hóp símum fyrir hönd Íslands í Dance World Cup í Telford í Bretlandi og hlaut silfurverðlaun en vegna faraldurs þurfti hópurinn að senda inn atriði á myndbandi. 

Aron hefur vakið athygli erlendra kennara og hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Hann þykir mjög efnilegur dansari og er góð fyrirmynd, ekki síst fyrir aðra drengi sem því miður hafa ekki alltaf þor til að æfa dans.

 

Jónatan Sverrisson hlaut hvatningarverðlaun. Jónatan hóf sinn knattspyrnuferil hjá Þrótti en færði sig yfir til Njarðvíkur þegar hann kom í fjórða flokk. Seinustu þrjú ár hefur hann leikið fyrir Njarðvík og er í dag fastamaður í A-liði Njarðvíkur í þriðja flokki. Jónatan getur leikið á ýmsum stöðum á vellinum en hefur oftast verið notaður í vörninni. Hann hefur staðið sig frábærlega á árinu 2021, sýnir góða ástundun og er góður liðsfélagi að auki. Jónatan er frábær fyrirmynd annarra barna og unglinga í Vogum og jákvæðni hans og stuðningur við nærumhverfi er kemur að starfsemi UMFÞ er til mikillar fyrirmyndar þannig að eftir því er tekið.

 

Mikael Árni Friðriksson hlaut hvatningarverðlaun. Mikael er knattspyrnumaður sem hóf sinn ferili hjá Þrótti en hefur nú skipt yfir til nágrannanna í Njarðvík og leikur þar á miðjunni. Mikael er mikil fyrirmynd, sleppir ekki æfingu og sýnir góða hegðun og er duglegur innan vallar sem utan.

 

Patrekur Unnarsson hlaut hvatningarverðlaun. Patrekur er knattspyrnumaður se hóf sinn feril hjá Þrótti en hefur nú ásamt félögum sínum J'onatan og Mikael fært sig um set og er nú fastamaður í hjarta varnarinnar þannig að ljóst er að Njarðvíkingar eru vel mannaðir í vörninni um þessar mundir með tvo Vogamenn. Patrekur er með framúrskarandi ástundun og sýnir mikinn áhuga og hefur sýnt það innan vallar sem utan að hann er mikill liðsmaður.

 

Ungmennafélagið Þróttur hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir árangur meistaraflokks karla í knattspyrnu árið 2021. Þróttarar tryggðu sér eins og flestir vita sigur í annarri deild og leika því í fyrstu deild að ári í fyrsta sinn í sögu félagsins. 

 

Sveitarfélagið óskar Ellen til hamingju með útnefninguna. Einnig öðrum sem hlutu tilnefningar og hvatningarverðlaun. Það er gaman að sjá að íþróttalífið í bænum blómstrar og margt í gangi. 

Á myndinni eru frá vinstri: Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri UMFÞ, Patrekur Unnarsson, Ellen Lind Ísaksdóttir, Aron Kristinsson og Mikael Árni Friðriksson

Hér er tengill á myndaalbúm frá athöfninni.