Dagskrá Vinnuskólans sumarið 2023

Í ár verður lagt aukið vægi á fræðslu í Vinnuskólanum. Dagskrá Vinnuskólans liggur nú fyrir og er hún sneisafull af skemmtilegum uppákomum.

Við hefjum starfsemi í Vinnuskólans vikuna 22-26 maí á því að flokkstjórar Vinnuskólans fari á námskeið hjá Vinnuftirlitinu um vinnuvernd og sitji námskeið í fyrstu hjálp.

Eins og áður hefur komið fram þá ætlar Vinnuskólinn að taka þátt í verkefni Landverndar "Vinnuskólar á grænni grein". Í tilefni af því mun Sigurlaug Arnardóttir frá Landvernd koma til okkar þann 12. júní og spjalla við okkur um verkefnið ásamt því að vera með almenna umhverfisfræðslu.

Á kvenréttindadaginn 19. júní koma aðilar frá Rauða krossinum og halda skyndihjálparnámskeið fyrir alla þátttakendur Vinnuskólans, þar verður m.a. farið yfir endurlífgun ásamt öðrum atriðum í fyrstu hjálp sem öllum er hollt að kunna.

Þann 27. júní og aftur þann 3. júlí mun Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, koma til okkar og fræða okkur um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Þar er um auðugan garð að gresja en áhersla verður á að læra lesa launaseðla, fræðast um stéttarfélög og lífeyrissjóði og fræða þátttakendur um hvar þau geti leitað sér upplýsinga um réttindi sín og skyldur.

6. júlí munum við svo hafa hressa uppskeruhátíð þar sem aðilar frá Kvan koma og verða með skemmtilegt hópefli og verður deginum slaufað með grilluðum pulsum. 

10. júlí verður svo haldin sumarhátíð vinnuskóla á suðurnesjum í Grindavík og mætum við að sjálfsögðu hress þangað. 

Af þessu má sjá að það er spennandi sumar framundan hjá okkur í Vinnuskólanum!

Umsóknir fyrir Vinnuskólann skilast á rafrænu formi í gegnum íbúagátt Sveitarfélagins og umsóknarfrestur er til og með 12. maí.