Dagskrá Fjölskyldudaga 2026

Nú styttist óðum í Fjölskyldudaga 2026. Í ár fagnar hátíðin 30 ára afmæli og því hefur verið lögð sérstök áhersla á að bjóða upp á veglega, fjölbreytta og skemmtilega dagskrá við allra hæfi.

Fjölskyldudagar hafa um árabil verið einn af hápunktum bæjarlífsins og skapað einstaka stemningu sem margir bæjarbúar hlakka til á hverju ári. Undanfarið vor og sumar hefur verið hægt að föndra skreytingar fyrir hátíðina alla þriðjudaga í Álfagerði og hafa íbúar og félagasamtök lagt sitt af mörkum til að gera bæinn sem glæsilegastan fyrir hátíðina.

Í ár var jafnframt leitað eftir stuðningi frá fyrirtækjum á svæðinu og viljum við færa þeim innilegar þakkir fyrir þeirra framlag. Stuðningur þeirra hefur skipt sköpum við að gera okkur kleift að bjóða upp á metnaðarfulla dagskrá.

Bæjarfélagið hefur lagt ríka áherslu á að Fjölskyldudagar séu hátíð fyrir alla. Því eru allir viðburðir og öll skemmtun á dagskránni gjaldfrjáls, þannig að allir geti tekið þátt og notið hátíðarinnar. Styrktaraðilar okkar eru lykillinn að því að gera það að veruleika.

Við vonum að íbúar og gestir njóti hátíðarinnar, taki virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá og eigi saman ánægjulegar stundir með fjölskyldu, vinum og nágrönnum. Megi Fjölskyldudagar enn á ný efla samheldni, gleði og samfélagsanda og skapa dýrmætar minningar sem lifa lengi.

Við minnum á Facebook síðu hátíðarinnar þar sem nálgast má allar helstu upplýsingar sem og dagskránna.