246. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, miðvikudaginn 13. maí 2026 og hefst kl. 17:30.
Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu
Almenn mál
1. 2603024 - Ársreikningur 2025
Bæjarstjórn tekur til síðari umræðu og afgreiðslu ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið
2025. Fyrir fundinum liggur ársreikningur 2025, sundurliðun ársreiknings,
staðfestingarbréf stjórnenda, endurskoðunarskýrsla löggiltra endurskoðenda
sveitarfélagsins og skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2025. Lilja Dögg Karlsdóttir,
endurskoðandi hjá KPMG, situr fundinn undir dagskrárliðnum.
2. 2312018 - Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga
Bæjarstjórn tekur til síðari umræðu og afgreiðslu tillögu að breytingu á samþykktum
Sveitarfélagsins Voga og tillögu að uppfærðum erindisbréfum umhverfis- og
skipulagsnefndar, fræðslunefndar og frístunda- og menningarnefndar.
3. 2604033 - Samningur um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við
fatlað fólk
Tekið fyrir 3. mál af dagskrá 450. fundar bæjarráðs þann 6.05.2026: Samningur um
félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk.
Lögð fram drög að samningi við Suðurnesjabæ um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu
og þjónustu við fatlað fólk auk draga að aðgerðaráætlun og minnisblaðs bæjarstjóra.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi við Suðurnejsabæ um
félagsþjónustu, barnaverndaþjónustu og þjónustu við fatlað fólk og vísar til staðfestingar í
bæjarstjórn.
4. 1906005 - Samningur um fræðsluþjónustu
Tekið fyrir 4. mál af dagskrá 450. fundar bæjarráðs þann 6.05.2026: Samningur um
fræðsluþjónustu.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra með tillögu um að samningur sveitarfélagsins við
Suðurnesjabæ um fræðsluþjónustu verði framlengdur. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs situr
fundinn undir dagskrárliðnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi við Suðurnesjabæ um
fræðsluþjónustu og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
5. 2604032 - Viðaukar 2026
Tekið fyrir 9. mál af dagskrá 450. fundar bæjarráðs þann 06.05.2026: Viðaukar 2026.
Lögð fram tillaga að viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026.
Rekstrarkostnaður
Aukinn kostnaður vegna viðhalds í Íþróttamiðstöð
Mál nr. 2601023
Á 446. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um
auka fjárveitingu vegna viðhalds á saunaklefa og gangi við sundlaugina í Vogum.
Áætlaður kostnaðarauki nemur um 5,6 m.kr. og er lagt til að auknum kostnaði sé mætt
með lækkun á handbæru fé.
Aukinn kostnaður vegna starfsmannamála í leikskólanum Suðurvellir
Mál nr. 2603016
Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni leikskólastjórnenda og sviðsstjóra
fjölskyldusviðs um að veita starfsfólki leikskólans 40% afslátt af námsgjaldi barna þeirra.
Jafnframt var samþykkt breyting á undirbúningstíma leiðbeinenda og eru þær breytingar
til reynslu í 1 ár. Áætlaður kostnaðarauki nemur um 5,3 m.kr. og er lagt til að auknum
kostnaði sé mætt með lækkun á handbæru fé.
Fráveita og vatnsveita
Mál nr. 2604025
Á 450. fundi bæjarráðs var samþykkt tillaga sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um
tilfærslu af fráveitu og vatnsveitu yfir á aðrar deildir innan samstæðu sveitarfélagsins
vegna innri viðskipta. Um er að ræða svokallaða milliverðlagningu vegna þjónustu á
fráveitu og vatnsveitu sem er veitt af öðrum deildum sveitarfélagsins. Samtals nemur
fjárhæðin 52,8 m.kr. samtals fyrir fráveitu og vatnsveitu og hafa viðskiptin engin áhrif á
rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins.
Fjárfesting
Búnaðarkaup fyrir íþróttasvæði
Mál nr. 2603026
Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um
auka fjárveitingu til kaupa á slátturróbóta fyrir íþróttasvæði. Áætlaður kostnaðarauki
nemur um 1,65 m.kr. og er lagt til að aukinni fjárfestingu sé mætt með lækkun á handbæru
fé.
Aukinn kostnaður vegna fráveituframkvæmda
Mál nr. 2603027
Á 447. fundi bæjarráðs var samþykkt beiðni sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um
auka fjárveitingu vegna framkvæmda á fráveitu í Akurgerði. Áætlaður kostnaðarauki
nemur um 7,7 m.kr. og er lagt til að aukinni fjárfestingu sé mætt með lækkun á handbæru
fé.
Samtals áhrif á rekstrarniðurstöðu er um 11 m.kr. til lækkunar og samtals áhrif á handbært
fé er um 20,3 m.kr. til lækkunar.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fundargerðir:
6. 2604008F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 450
7. 2605001F - Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga - 121
8. 2605002F - Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 134