Dagskrá Bæjarstjórnarfundar 3. nóvember 2026

251. fundur Bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, þriðjudaginn 3. nóvember 2026 og hefst kl. 17:30.

Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu

 

Dagskrá:

Almenn mál

1. 2608034 - Voganeistinn - framtakssjóður Sveitarfélagsins Voga
Tekið fyrir mál um stofnun Voganeistans og reglur um sjóðinn sem bæjarráð vísaði til
bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs þann 27. október sl. Á fundinum samþykkti bæjarráð
stofnun Voganeistans og framlögð regludrög sjóðsins.

2. 2601034 - Erindisbréf Ungmennaráðs Voga 2026-2027
Tekið fyrir uppfært erindisbréf Ungmennaráðs Voga fyrir starfsárið 2026-2027 og lagt
fram til afgreiðslu. Erindisbréfið var samþykkt í bæjarráði og vísað til bæjarstjórnar til
endanlegrar afgreiðslu.

3. 2610037 - Hraðhleðsla í Vogum
Lögð fram drög að samningi milli Sveitarfélagsins Voga og Orkusölunnar um
uppsetningu og rekstur hraðhleðslustöðvar við tjaldsvæðið í Vogum, ásamt afstöðumynd
sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu og öðrum fylgiskjölum. Umhverfis- og
skipulagsnefnd vísaði fyrirliggjandi samningi til bæjarstjórnar til samþykktar, að því
gefnu að nauðsynleg leyfi og skilyrði vegna framkvæmdarinnar verði uppfyllt.

4. 2609019 - Græn svæði og leiksvæði í þéttbýli Voga
Tekin fyrir greinargerð um fyrirhugaðar endurbætur á núverandi leiksvæði undir
vinnuheitinu Litli Róló, þar sem áhersla er lögð á náttúrulegt og aðgengilegt leik- og
dvalarsvæði fyrir yngstu börnin. Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn
að heimila umhverfis- og skipulagssviði að vinna tillöguna áfram, meðal annars í
samráði við Skógræktarfélagið, og leggja fram nánari útfærslu ásamt kostnaðaráætlun og
mögulega áfangaskiptingu.

5. 2501010 - Aðal- og deiliskipulagstillaga Hafnargötu 101
Tekin fyrir aðal- og deiliskipulagstillaga Hafnargötu 101. Á fundi umhverfis- og
skipulagsnefndar lagði nefndin til að bæjarstjórn samþykki að næsta skref verði kynning
hennar fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum kynningar og
íbúafundi, í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6. 2609032 - UV-lýsingarbúnaðar fyrir neysluvatnsdreifikerfi í Vogum
Tekin fyrir fyrirhuguð framkvæmd og staðsetning á tengihúsi vegn UV-lýsingarbúnaðar
fyrir neysluvatnskerfi í Vogum. Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 15.
september sl. tók nefndin jákvætt í erindi HS Veitna og fyrirhugaða staðsetningu
tengihúss vegna búnaðarins og samþykkti framkvæmdina fyrir sitt leyti. Þann 28.
október sl. tók nefndin málið fyrir að nýju þar sem í ljós kom að fyrirhuguð lóð og
mannvirki eru ekki sýnd á gildandi deiliskipulagi svæðisins. Lagði nefndin til við
bæjarstjórn að vikið verði frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu
enda skerðist hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp
eða innsýn.

7. 2604013 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi - Grænuborgarhverfi 1. áfangi.
Tekin fyrir umsókn um breytingu á deiliskipulagi Grænuborgarhverfis, 1. áfangi, vegna
lóðanna við Gíslaborg og samþykkti umhverfis- og skipulagsnefnd, á fundi nefndarinnar
þann 15. september sl., tillöguna með vísan til þess að um óverulega breytingu á
deiliskipulaginu væri að ræða og engar athugasemdir bárust við tillöguna í
grenndarkynningu. Nefndin vísaði tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.


Fundargerðir til staðfestingar

8. 2610003F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 458
Lögð fram fundargerð 458. fundar bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 13.
október 2026.
9. 2610004F - Ungmennaráð Sveitarfélagsins Voga - 4
Lögð fram fundargerð 4. fundar ungmennaráðs Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var
19. október 2026.
10. 2610005F - Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 139
Lögð fram fundargerð 139. fundar frístunda- og menningarnefndar sem haldinn var 22.
október 2026.
11. 2610007F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 459
Lögð fram fundargerð 459. fundar bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 27.
október 2026.
12. 2610008F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 4
Lögð fram fundargerð 4. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Voga
sem haldinn var 28. október 2026.

30.10.2026
Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri.