Dagskrá bæjarstjórnarfundar

245. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, miðvikudaginn 29. apríl 2026 og hefst kl. 17:30.

Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu

Dagskrá:

Almenn mál
1. 2603024 - Ársreikningur 2025

Tekið fyrir 5. mál af dagskrá 448. fundar bæjarráðs þann 22.04.2026: Ársreikningur 2025.
Lögð fram drög að ársreikningi Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2025.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð vísar ársreikningi Sveitarfélagsins Voga 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn og
til endurskoðunar.

2. 2604010 - Deiliskipulagsbreyting við Jónsvör 3-5-7

Tekið fyrir 3. mál af dagskrá 79. fundar skipulagsnefndar þann 14.04.2026:
Deiliskipulagsbreyting við Jónsvör 3, 5 og 7.
Lögð er fyrir deiliskipulagsbreyting vegna Jónsvarar 3, 5 og 7. Byggingarreitir á lóðum
nr. 3, 5 og 7 við Jónsvör stækka úr 660 m2 í 729 m2. Byggingarreitirnir breikka um 2 m
til norðurs og verða eftir breytingu 5,7 m frá lóðarmörkum til norðurs.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Það er mat skipulagsnefndar að um óverulega breytingu sé
að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur Umhverfis- og
skipulagssviði að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og leggur til við
bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt með fyrirvara um niðurstöðu
grenndarkynningar.

Fundargerðir:
3. 2604005F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 448