Dagskrá bæjarstjórnarfundar

243. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, miðvikudaginn 25. mars 2026 og hefst kl. 17:30.

Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu

Dagskrá:

Almenn mál
1. 2603028 - Kosning í nefndir og ráð 2026
Lögð fram tillaga að breytingu á skipan í kjörstjórn. Jón Ingi Baldvinsson hefur óskað
lausnar frá störfum í kjörstjórn af persónulegum ástæðum. Lagt til að Svanborg
Svansdóttir verði tilnefnd sem aðalmaður í kjörstjórn í hans stað og að Erna Margrét
Gunnlaugsdóttir verði varamaður.

2. 2311013 - Neyðarstjórn - erindisbréf
Tekið fyrir 6. mál af dagskrá 446. fundar bæjarráðs þann 18.03.2026: Neyðarstjórn -
erindisbréf.
Lögð fram drög að uppfærðu erindisbréfi neyðarstjórnar sveitarfélagsins.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög erindisbréfs neyðarstjórnar sveitarfélagsins
og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

3. 2602056 - Brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja 2026-2030
Tekið fyrir 5. mál af dagskrá 445. fundar bæjarráðs þann 04.03.2026: Brunavarnaáætlun
Brunavarna Suðurnesja 2026-2030.
Lögð fram Brunavarnaáætælun Brunavarna Suðurnesja 2026- 2030 (10-02-2026 10:57).
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir framlagða brunavarnaráætlun Brunavarna Suðurnesja og vísar til
staðfestingar í bæjarstjórn.

Fundargerðir:
4. 2603002F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 446
5. 2602008F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 445
6. 2602006F - Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 78