Dagskrá bæjarstjórnarfundar

 

240. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, miðvikudaginn 10. desember 2025 og hefst kl. 17:30.

Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu

Dagskrá:

Almenn mál

1.

2512006 - Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga - Desember 2025

 

Lögð fram tillaga um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga auk minnisblaðs bæjarstjóra. Lánsfjármagn verði nýtt til að greiða upp lán sveitarfélagsins hjá Íslandsbanka.

 

   

2.

2512008 - Gjaldskrá 2026

 

Lögð fram gjaldskrá Sveitarfélagsins Voga 2026.

 

   

3.

2508067 - Fjárhagsáætlun 2026 -2029

 

Lögð fram fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2026 og langtímaáætlun 2027-2029.

 

   

4.

2511032 - Stjórnskipulag sveitarfélagsins - uppfært skipurit

 

Tekið fyrir 7. mál af 440. fundi bæjarráðs þann 03.11.2025: Stjórnskipulag sveitarfélagsins - uppfært skipurit

Lögð fram tillaga að uppfærðu skipuriti sveitarfélagsins í kjölfar stofnunar fjölskyldusviðs.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögur með áorðnum breytingum að uppfærðu skipuriti sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn. Með nýju fjölskyldusviði og skipuriti sveitarfélagsins skapast slagkraftur til að bæta enn frekar þjónustu við fjölskyldur.

 

   

5.

2412011 - Ráðning sviðsstjóra

 

Tekið fyrir 8. mál á dagskrá 440. fundar bæjarráðs þann 03.11.2025: Ráðning sviðsstjóra

Lögð fram tillaga að framlengingu ráðningar sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um 12 mánuði auk minnisblaðs bæjarstjóra. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs vék af fundi undir dagskrárliðnum.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu um framlengingu tímabundins ráðningarsamnings sviðsstjóra fjámála- og stjórnsýslu um 12 mánuði og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

 

   

6.

2510023 - Jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Voga

 

Tekið fyrir 9. mál á dagskrá bæjarráðs þann 03.11.2025: Jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Voga.

Lögð fram drög að jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Voga 2025-2026. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og verkefnastjóri stjórnsýslu og menningar sitja fundinn undir dagskráliðnum.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að jafnréttisáætlun sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

 

   

7.

2512012 - Viðauki við samning um Brunavarnir Suðurnesja

 

Tekin fyrir tillaga að viðauka við samning um Brunavarnir Suðurnesja varðandi greiðslufrest mánaðarlegra rekstrarframlaga aðildarsveitarfélaga.

 

   

8.

2512002 - Vegir í náttúru Íslands

 

Tekið fyrir 4. mál af dagskrá 75. fundar Skipulagsnefndar þann 8.12.2025: Vegir í náttúru Íslands.

Tekin fyrir skrá yfir vegi í náttúru Íslands sem er skrá yfir vegi aðra en þjóðvegi sem sveitarstjórn skal skrá samhliða gerð aðalskipulags skv. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Fyrir liggur tillaga að skrá yfir þá vegi sem koma til greina skv. leiðbeiningum Skipulagsstofnunar.

Afgreiðsla skipulagsnefndar: Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að vegum í náttúru Íslands verði samþykkt og send Skipulagsstofnun skv. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.

 

   

Fundargerðir

9.

2511007F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 440

 

   

10.

2511002F - Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 75