Dagskrá bæjarstjórnarfundar

239. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, miðvikudaginn 26. nóvember 2025 og hefst kl. 17:30.

Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu

Dagskrá:
Almenn mál
1. 2508067 - Fjárhagsáætlun 2026 -2029
Tekið fyrir 5. mál á dagskrá 438. fundar bæjarrráðs þann 05.11.2025: Fjárhagsáætlun
2026-2029.
Lögð fram fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2026 og langtímaáætlun 2027-
2029.
Sviðsstjórar fjölskyldusviðs og fjármála- og stjórnsýslusviðs kynna starfsáætlanir sinna
sviða og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs kynnir drög að framkvæmdaáætlun.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun
Sveitarfélagsins Voga 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029 til fyrri umræðu í
bæjarstjórn.

2. 2510031 - Drög að erindisbréfi ungmennaráðs

Tekið fyrir 1. mál á dagskrá 127. fundar frístunda- og menningarnefndar þann 13.11.2025:
Drög að erindisbréfi ungmennaráðs.
Lögð fram drög að erindisbréfi ungmennaráðs Sveitarfélagsins Voga.
Afgreiðsla frístunda- og meningarnefndar:
Nefndin tók fyrir erindisbréfið og lagði til nokkrar breytingar. Nefndin ræddi mikilvægi
þess að endurskoða framkvæmd skipunar í ráðið að teknu tilliti til reynslu af
framkvæmdinni samkvæmt erindisbréfi þessu. Erindisbréfinu er vísað til samþykktar hjá
bæjarstjórn.
3. 2412009 - Samkomulag - Hafnargata 101
Tekið fyrir 6. mál á dagskrá 438. fundar bæjarráðs þann 5.11.2025: Samkomulag -
Hafnargata 101.
Lögð fram drög að viðauka við samkomulag um uppbyggingu við Hafnargötu 101.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að viðauka við samkomulag um
uppbyggingu við Hafnargötu 101, sem snýr að tilfærslu dagsetninga og breytingum er
varða útlagðan kostnað Arnarvirkis við framkvæmd niðurrifs. Vísað til staðfestingar í
bæjarstjórn.

4. 2106010 - Betra Ísland - ábendingar hvað má betur fara í umhverfismálum

Tekið fyrir 4. mál á dagskrá 28. fundar umhverfisnefndar þann 12.11.2025: Betra Ísland -
ábendingar hvað má betur fara í umhverfismálum.
Farið yfir samráðvettvanginn Betra Ísland "Fyrir Voga" en ætlunin sé að hefja söfnun
hugmynda fyrir næsta ár.
Umhverfisnefnd hvetur bæjarstjórn til að veita fjármagn í verkefnið. Um sé að ræða
lýðræðis- og samráðsverkefni íbúa og sveitarfélagsins sem geri sveitarfélagið betra, skapi
eitthvað nýtt, geti elft hreyfingu og hafi jákvæð áhrif á umhverfi íbúa.

Fundargerðir

5. 2511003F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 439
6. 2510008F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 438
7. 2511001F - Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga - 28
8. 2509006F - Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 128