233. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, mánudaginn 12. maí 2025 og hefst kl. 17:30.
Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2503021 - Ársreikningur 2024
Bæjarstjórn tekur til síðari umræðu og afgreiðslu ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2024. Fyrir fundinum liggur ársreikningur 2024, sundurliðun ársreiknings, staðfestingarbréf stjórnenda, endurskoðunarskýrsla löggiltra endurskoðenda sveitarfélagsins og skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2024. Lilja Dögg Karlsdóttir, endurskoðandi hjá KPMG, situr undir dagskrárliðnum.