232. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, 30. apríl 2025 og hefst kl. 17:30.
Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2503021 - Ársreikningur 2024
Lögð fram drög að ársreikningi Sveitarfélagsins Voga 2024 til fyrri umræðu.
2. 2104030 - Frístundasvæði við Breiðagerðisvík - Deiliskipulagsmál
Tekið fyrir 1. mál af dagskrá fundar Skipulagsnefndar dags. 22.04.2025 Frístundasvæði
við Breiðagerðisvík - Deiliskipulagsmál - 2104030 Tekið fyrir að nýju eftir auglýsingu í
samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin fór yfir umsagnir og athugasemdir í samræmi við
3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir tillögur að svörum athugasemda
og umsagna. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að deiliskipulagi
skv. áðurnefndri grein skipulagslaga nr. 123/2010.
3. 2501010 - Aðal- og deiliskipulagstillaga Hafnargötu 101
Tekið fyrir 3. mál af dagskrá fundar Skipulagsnefndar dags. 22.04.2025 Aðal- og
deiliskipulagstillaga Hafnargötu 101
2501010. Lögð er fram skipulagslýsing á aðalskipulagsbreytingu skv. 30. gr. og nýju
deiliskipulagi skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Afgreiðsla skipulagsnefndar:
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt skv. 3. mgr. 40 gr. og
2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. 2504009 - Samningur um aðstöðuleigu BS
Tekið fyrir 7. mál á dagskrá 424. fundar bæjarráðs þann 14.04.2025: Samningur um
aðstöðuleigu BS
5. 2502022 - Kosning í ráð og nefndir 2025
Lögð fram tillaga að breytingu á skipan í Öldungaráð Suðurnesjabæjar og
Sveitarfélagsins Voga. Lagt er til að Hólmgrímur Rósenbergsson verði skipaður sem
fulltrúi sveitarfélagsins í stað Jóngeirs H. Hlinasonar sem víkur sem fulltrúi
sveitarfélagsins.
6. 2504002F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 424
7. 2503007F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 423
8. 2503006F - Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 69
9. 2504001F - Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 123
10. 2502004F - Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga - 25
11. 2409010F - Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga - 24