253. fundur Bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, þriðjudaginn 1. desember 2026 og hefst kl. 17:30.
Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2611028 - Mönnun og ráðningar hjá sveitarfélaginu
Tekið fyrir 3. mál á dagskrá 461. fundar bæjarráðs þann 24.11.2026, þar sem bæjarráð samþykkti tillögur bæjarstjóra um breytingu á mönnun og fyrirkomulagi starfa hjá sveitarfélaginu, ásamt undirbúningi ráðninga fyrir árið 2027 og vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
2. 2604032 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Tekið fyrir 2. mál á dagskrá 461. fundar bæjarráðs þann 24.11.2026. Lagður fram viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026, þ.e. rekstrarviðauki, sem vísað var til afgreiðslu í bæjarstjórn. Þá er lagður fram viðauki nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026, þ.e. fjárfestingarviðauki, sem frestað var á fundi bæjarráðs og er nú tekinn fyrir í bæjarstjórn.
3. 2608036 - Fjárhagsáætlun 2027 -2030
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030, til síðari umræðu.
4. 2611033 - Gjaldskrá Sveitarfélagsins Voga 2027
Lögð fram gjaldskrá Sveitarfélagsins Voga 2027.
Fundargerðir til kynningar
5. 2611007F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 461
Lögð fram fram fundargerð 461. fundar bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 24. nóvember 2026.
6. 2611003F - Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga - 125
Lögð fram fram fundargerð 125. fundar fræðslunefndar Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 16. nóvember 2026.
7. 2611006F - Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 140
Lögð fram fundargerð 140. fundar frístunda- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Voga sem haldinn var 16. nóvember 2026.
27.11.2026
Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri.