Í nótt kom upp eldur í andyri aftan við þjónustumiðstöðina við Iðndal 2 þar sem bæjarskrifstofurnar og heilsugæslan eru til húsa, ásamt Sparisjóði Keflavíkur, Snertu og Verslun N1. Sem betur fer urðu engin meiðsl á fólki, en nokkuð tjón varð vegna elds og reyks. Líklega hefur kviknað í sorptunnum út frá flugeldum.