Barnaþing Barnaheilla

Nemendaráð Stóru-Vogaskóla og Ungmennaráð Voga tóku þátt í þingi á vegum Barnaheilla um ofbeldi á dögunum. Þar unnu þau í hópum og svöruðu fjölbreyttum spurningum um hvað væri ofbeldi, hvernig ætti að setja mörk og hvert væri hægt að leita ef grunur léki á því að viðkomandi væri beittur ofbeldi. Unga fólkið var okkur öllum til sóma sem endranær og voru leyst út með gjöfum auk þess að fara södd heim að þingi loknu.
Á heimasíðu Barnaheilla má finna afar gott fræðsluefni: https://barnaheill.is
Auk þess sem hægt er að hringja í 1717 hjálparsíma Rauða krossins eða fara á síðuna https://sjukast.is til að fá aðstoð ef þarf.

Hér eru nokkrar myndir frá þinginu af okkar þátttakendum á þinginu: