Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaðar reglur um kjör íþróttamanns ársins, sjálfboðaliða ársins og hvatningarverðlaun

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum í gær, 17. nóvember, endurskoðaðar reglur um kjör íþróttamanns ársins, sjálfboðaliða ársins og hvatningarverðlaun.

Markmið endurskoðunarinnar er að auka skýrleika og gagnsæi í valferlinu og gera framlagi sjálfboðaliða til íþrótta-, frístunda- og menningarstarfs í Vogum hærra undir höfði.

Viðurkenningin Sjálfboðaliði ársins var veitt í fyrsta sinn fyrr á árinu. Með endurskoðuðum reglum er hún nú fest í sessi sem árleg viðurkenning til þeirra sem leggja mikið af mörkum til íþrótta-, frístunda- eða menningarstarfs í Vogum.

Nú má tilnefna bæði einstaklinga og hópa til hvatningarverðlauna. Með verðlaununum er vakin athygli á framförum ungra íþróttaiðkenda, metnaði þeirra og jákvæðri þátttöku í íþróttastarfi.

Með viðurkenningunum vill sveitarfélagið fagna árangri íþróttafólks, hvetja unga iðkendur áfram og þakka sjálfboðaliðum fyrir framlag þeirra til samfélagsins í Vogum.

Lesa reglurnar í heild