Auglýsing vegna deiliskipulags

Kynning skipulagslýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnu við deiliskipulag fyrir þann hluta þéttbýlis í Vogum, sem ekki er til deiliskipulag fyrir.

 

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 25. nóvember 2020 skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar vinnu við deiliskipulag fyrir þann hluta þéttbýlis í Vogum, sem ekki er til deiliskipulag fyrir, skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Lýsingin er sett fram í greinargerð og má nálgast hana á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is/is/thjonusta/skipulag/skipulag-i-kynningu .

Skriflegum ábendingum við efni lýsingarinnar má skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogum, eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en 28. desember 2020.

Vogum, 2. desember 2020

F.h. bæjarstjórnar,

Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

 

Hægt er að kynna sér málið nánar hér