Ath. Sundlauginni hefur verið lokað vegna skorts á heitu vatni

Vegna aðstæðna hefur sveitarfélögunum á Suðurnesjum borist beiðni um að loka sundlaugum í þeim tilgangi að spara heitt vatn.  

Sundlauginni í Vogum hefur því verið lokað. Ekki liggur fyrir hversu lengi lokunin mun vara en mögulega verður lokað næstu daga vegna áhrifa eldgossins við Grindavík.

Við biðjum íbúa velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en við munum uppfæra fréttina eftir því sem aðstæður breytast og nýjar upplýsingar berast.