Áramótabrennu aflýst

Fyrirhugað var að halda áramótabrennu í Sveitarfélaginu Vogum eins og undanfarin ár, þegar það hefur verið talið óhætt vegna sóttvarna. Nú er hins vegar staðan þannig að ekki þykir mögulegt að halda brennuna í ár og er henni því aflýst. 

Slík ákvörðun er óhjákvæmileg en það er von okkar allra að við getum komið til baka að ári og haldið veglega áramótabrennu.