Áramótabrenna 2023

Í ár munum við endurvekja þá hefð að hafa áramótabrennu í Vogum. Brennan verður inn á Vatnsleysuströnd, á túninu fyrir neðan Skipholt. Gott aðgengi er að brennunni á bíl og hægt er að leggja bílum t.d. við skemmuna neðan við Skipholt. Brennan hefst kl. 20:30 þann 31. desember.

Staðsetningin er merkt á myndinni hér fyrir neðan með rauðu X.