Appelsínugul veðurviðvörun á morgun

Neyðarstjórn sveitarfélagsins fundaði fyrr í dag vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar sem er í gildi á milli klukkan 7:00 og 13: 00 á morgun.

Skólastarf fer fram að svo stöddu og stofnanir sveitarfélagsins eru opnar, nema annað verði sérstaklega tilkynnt. Forsjáraðilar eru eindregið hvattir til að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla. Fylgja skal börnum inn og út úr skólabyggingunni til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi.  Upplýsingar verða uppfærðar ef forsendur breytast.

Íbúar eru hvattir til að huga að niðurföllum og lausamunum, sem og að fylgast vel með fréttum af veðri og færð fyrir morgundaginn. 
Einnig að fylgjast vel með upplýsingum af skólahaldi hér á vef sveitarfélagins og stofnana þess. 
Neyðarstjórn fundar klukkan 6:30 í fyrramálið og fyrr ef þurfa þykir.