Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026

Einn merkilegasti náttúruatburður síðari ára verður þegar almyrkvi verður sýnilegur yfir Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst 2026.

Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1433 sem almyrkvi sést á Íslandi. Næsti almyrkvi sem verður sýnilegur hér á landi verður ekki fyrr en 26. maí 2245.

Almyrkvaslóðin nær yfir allan Reykjanesskaga sem gerir svæðið að einum besta stað landsins til að upplifa þennan einstaka atburð.

Gert er ráð fyrir að mikill fjöldi fólks komi á Reykjanesið til að upplifa almyrkvann og er undirbúningur vegna atburðarins hafinn hjá Sveitarfélaginu Vogum og viðbragðsaðilum á svæðinu.

Hvenær sést almyrkvinn í Sveitarfélaginu Vogum?
Hér í Vogum stendur almyrkvinn yfir í um 1 mínútu og 32 sekúndur. Lengd deildarmyrkva verður 2 klst og 37 sekúndur.

  • Deildarmyrkvi hefst kl. 16:47:17
  • Almyrkvi hefst kl. 17:48:11
  • Almyrkvi í hámarki kl. 17:48:57
  • Almyrkva lýkur kl. 17:49:43
  • Deildarmyrkva lýkur kl. 18:47:54

Örugg augu
Gríðarlega mikilvægt er að nota öryggisvottuð sólmyrkvagleraugu þegar horft er á almyrkva. Þannig er hægt að koma í veg fyrir augnskaða, sem í verstu tilfellum getur verið varanlegur.
Sveitarfélagið Vogar gaf öllum nemendum Stóru-Vogaskóla sólmyrkvagleraugu við skólaslit í júní sl. en hægt er að kaupa gleraugu af Ungmennafélaginu Þrótti í Íþróttamiðstöðinni Vogum að Hafnargötu 17 og kosta þau 500 kr.

Helstu upplýsingar um almyrkvann og þann undirbúning sem mun fara fram hjá Sveitarfélaginu Vogum er hægt að skoða hér á tenglinum fyrir neðan sem er einnig að finna á forsíðu heimasíðunnar.

Almyrkvi á sólu í Sveitarfélaginu Vogum

*Síðan verður uppfærð reglulega og eru íbúar hvattir til að fylgjast með uppfærslum.

Tengiliðir
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar varðandi atburðinn þá er hægt að hafa samband við Ástu Maríu, verkefnastjóra, s: 868-0550/netfang: astamaria@vogar.is