Allraheilagramessa 06.11.2022 kl. 11:00

"Sr. Bolli Pétur Bollason verður settur formlega í embætti prests í Tjarnaprestakalli á allraheilagramessu þann 6. nóvember kl. 11.

Messan fer fram í Kálfatjarnarkirkju. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi, setur Bolla í embætti.
sr. Arnór Bjarki Blomsterberg, sr. Hans Guðberg Alfreðsson og sr. Bolli Pétur Bollason þjóna. Gengið verður til altaris.
Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Daníels Arasonar, organista.

Að messu lokinni verður boðið upp á kaffiveitingar í Álfagerði
Messan er sameiginleg fyrir báðar sóknir prestakallsins, Ástjarnarkirkju og Kálfatjarnarkirkju"