Álag á fráveitu – unnið að lausn

Umhleypingasamt veður að undanförnu hefur orsakað töluvert álag á fráveitu. Til að létta á kerfinu hefur verið notast við dælingarbúnað og óhætt að segja að starfsmenn þjónustumiðstöðvar hafi haft í nægu að snúast við snjómokstur og dælingar undanfarna daga.

Vinna er þegar hafin að varanlegri lausn og allt kapp verður lagt á að hraða þeirra vinnu. 
Kerfið verður vel vaktað um helgina, sími umhverfisdeildar vegna bilana er 620-7777.