Afsláttur af leikskólagjöldum vegna tekna

Foreldrar eru minntir á að sækja þarf um tekjutengdan afslátt af leikskólagjaldi fyrir 1. september 2023

Sótt er um í gegnum íbúagátt  á heimasíðu Sveitarfélagsins Voga https://vogar.ibuagatt.is/login.aspx

Afslátturinn tekur gildi í mánuðinum eftir að umsókn berst og gildir einungis eitt skólaár í senn, þ.e. frá  1. september 2023 -31. ágúst 2024.

Afsláttur er veittur af almennu dvalargjaldi, ekki fæði,  í samræmi við tekjuviðmið sem Sveitarfélagið Vogar setur.

TEKJUVIÐMIÐ:
Brúttótekjur á ári :
Einstaklingur:
0 til 4.828.685 kr. 40%
4.828.686 kr. til 5.793.064 kr. 20%

Fólk í sambúð:
0 til 6.758.801 kr.. 40%
6.758.802 kr. til 8.111.648 kr. 20%