Að gefnu tilefni, engar blautþurrkur í klósettið

Að gefnu tilefni þá viljum við minna fólk á að það má og á alls ekki að henda blautþurrkum í klósettið. Borið hefur á því að blautþurrkum sé sturtað niður í klósettið og er það afar slæmt fyrir fráveituna. Blautþurrkurnar geta valdið stórum stíflum með miklum og slæmum afleiðingum. Viljum við biðja íbúa að sýna þessu skilning og passa að það sé aðeins klósettpappír sem endi í klósettinu.