215. fundur Bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga

Fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, 20.desemberr 2023 og hefst kl. 18:00.

Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu.

 

Dagskrá

Almenn mál

1. 2311017 - Hækkun útsvarsálagningar vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk

Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.

Tillaga að afgreiðslu:
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97%.

Þar sem tekjuskattsálagning lækkar um samsvarandi hlutfall hefur ákvörðunin ekki áhrif á heildarálögur á skattgreiðendur.