17. júní haldinn hátíðlegur

Þann 17. júní voru veitt menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga og styrkir úr Mennta, menningar- og afrekssjóði veittir þeim þremur nemendum sem voru með hæstu meðaleinkunn við útskrift úr Stóru-Vogaskóla.

Hjónin Helgi R. Guðmundsson og Júlía H. Gunnarsdóttir hlutu heiðursmenningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2026. Í gegnum árin hafa þau verið órjúfanlegur hluti af samfélaginu okkar og lagt sitt af mörkum með elju, sköpunargleði og miklum samfélagsanda. Margir tengja þau sérstaklega við Fjölskyldudagana, þar sem garðurinn þeirra hefur ár eftir ár verið einstaklega glæsilega skreyttur og orðið órjúfanlegur hluti af hátíðarstemningunni.

Á hverju ári hafa þau opnað garðinn sinn fyrir gestum og gangandi, þannig að allir geti notið þeirrar vinnu og sköpunar sem þar liggur að baki. Þar hafa jafnt börn sem fullorðnir staldrað við, notið skreytinganna og tekið þátt í þeirri einstöku stemningu sem þau hafa skapað í gegnum árin.

Þá fékk samstarf félagsstarfs aldraðra í Álfagerði og Heilsuleikskólans Suðurvalla ,,brú á milli kynslóða” menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2026. Í verkefninu unnu börn af leikskólanum, undir leiðsögn smíðahóps eldri borgara, að því að smíða fugla úr tré. Úr varð fjölbreyttur og litríkur fuglahópur, sem síðar var settur upp á sýningu.

Verkefnið er sérstaklega dýrmætt vegna þess að það leiðir saman kynslóðir, skapar samtal, gleði og sameiginlega reynslu. Börnin fengu að læra af eldri kynslóðinni, kynnast handverki og njóta samveru og um leið varð til eitthvað fallegt sem samfélagið allt gat notið.

Þeir þrír nemendur með hæstu einkunn við útskrift úr Stóru-Vogaskóla fengu afhenda styrki úr afrekssjóði sveitarfélagsins. Það voru þeir Eric Daniel Eiríksson, Sverrir Björgvin Gunnarsson og Ragnar Ingi Pétursson.

Við óskum verðlauna- og styrkhöfum til hamingju og óskum þeim velfarnaðar í leik og störfum.


Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri ásamt hjónunum Júlíu H. Gunnarsdóttur og Helga R. Guðmundssyni sem hlutu heiðursmenningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2026


Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri ásamt Heiðu Hrólfsdóttur, leikskólastjóra og Oktavíu Ragnarsdóttur umsjónarmanns félagsstarfs eldri borgara með verðlaun vegna verkefnisins Brú á milli kynslóða

Björg Ásta, bæjarstjóri ásamt styrkhöfum afrekssjóðs Eric Daniel Eiríkssyni, Samúeli Óla Péturssyni (sem tók við verðlaunum fyrir Ragnar Inga Pétursson) og Sverri Björgvini Gunnarssyni sem útskrifuðust með hæstu meðaleinkunn í 10. bekk í Stóru-Vogaskóla í ár.

 

Fleiri myndir frá hátíðarhöldum: