150 ára afmæli skólahalds í Sveitarfélaginu Vogum. Afmælisþættir (1) - Þriðji elsti barnaskóli sem enn starfar

Í ár eru merkileg tímamót í skólasögu sveitarfélagsins en í ár er 150 ára afmæli skólahalds í Sveitarfélaginu. Af því tilefni hefur Þorvaldur Örn Árnason tekið saman pistla um sögu skólans og er ætlunin að birta þá hér um það bil vikulega fram eftir ári. Nú þegar eru sex pistlar tilbúnir en það kæmi ekki á óvart að Þorvaldur myndi bæta eitthvað við þá tölu því hann er hafsjór af fróðleik og kunnum við honum miklar þakkir fyrir þetta frábæra framtak sem og önnur framlög hans til menningarlífs í sveitarfélaginu.

 

Skólinn okkar á afmæli í ár! Afmælisdagurinn er 12. september, en við höldum upp á afmælið allt árið!

Stóru-Vogaskóli er þriðji elsti barnaskólinn á Íslandi sem hefur starfað samfleitt. Eldri skólar sem enn starfa eru barnaskólinn á Eyrarbakka (1852) og barnaskóli Reykjavíkur (1862).

Séra Stefán Thorarensen, prestur á Kálfatjörn, átti frumkvæði að því að stofna hér skóla. Hann stofnaði til þess félag sem aflaði fjár og lét byggja skólahús. Þannig starfaði skólinn frá upphafi í eigin húsnæði. Stefán samdi reglugerð fyrir skólann í 30 greinum. Vísir var að unglingadeild og heimavist var frá upphafi.

Haustið 1872 tóku tveir skólar til starfa, báðir í nýbyggðu húsnæði, báðir á Suðurnesjum; Gerðaskóli í Garði og skólinn okkar hér í Sveitarfélaginu Vogum sem þá hét Vatnsleysustrandarhreppur og náði einnig yfir Njarðvík.

Í upphafi hét skólinn okkar því langa nafni: “Thorchillii Barnaskólinn í Vatnsleysustrandarhreppi”. Það nafn festist þó ekki við hann, heldur var hann kallaður Suðurkotsskóli, enda byggður á jörðinni Suðurkoti í Brunnastaðahverfi. Seinna (nálægt 1930) breyttist nafnið í Brunnastaðaskóli og þegar hann var síðan fluttur í Voga árið 1979 fékk hann núverandi nafn, Stóru-Vogaskóli, enda byggður í túni höfuðbýlisins Stóru-Voga. Steinhlaðnar rústir síðustu íbúðarhúsanna að Stóru-Vogum, sem reist voru 1871 og 1912, eru nú hluti af leikvelli skólans.

Öll þessi 150 ár er þetta sama stofnunin, þó hús væru byggð og rifin og nöfnum breytt. Grunnur elsta skólahússins er enn heillegur og aðalbygging skólans 1944 – 1979 er nú íbúðarhúsið Skólatún í Brunnastaðahverfi. Byggð voru tvö minni skólahús og starfækt um tíma - eins konar útibú frá skólanum í fjarlægum hverfum þegar þar var barnmargt. Þannig starfaði skóli í Kálfatjarnarhverfi 189? - 1910 (í Landakoti og síðar Norðurkotsskóla) og í Vatnsleysuhverfi 1910 - 1914 og 1925 - 1943. Frá haustinu 1943 hefur verið skólabíll og eftir það öll kennslan á einum stað.

Minjafélag Vatnsleysustrandar hefur nú endurbyggt Norðurkostsskóla að Kálfatjörn og er þar nú lítið snoturt skólasafn. 

Myndin með fréttinni er af fundargerð stofnfundar skólans 12. sept. 1872.