Ungmennaráð Sveitarfélagsins Voga

4. fundur 19. október 2026 kl. 16:30 - 17:20 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Emelía Ósk Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Aljosa Dedeic aðalmaður
  • Björgvin Dagur Kárason aðalmaður
  • Þórunn SIf Kjartansdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Kamilla Huld Jónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Kamilla Huld Jónsdóttir Forstöðumaður félagsmiðstöðvar
Dagskrá

1.Hlutverk og starfsáætlun ungmennaráðs Sveitafélagsins Voga

2610021

Farið verður yfir hlutverk og starfsáætlun ungmennaráðs sveitafélagsins Voga 2026-2027.
Starfsáætlun UNGVOG fyrir starfsárið 2026-2027 var rædd og samþykkt. Jafnframt var farið yfir hlutverk ungmennaráðs, fundartíma, fundarboð og fyrirkomulag funda.

2.Verkefni ungmennaráðs 2025-2026

2610022

Farið verður yfir helstu verkefni Ungmennaráðs Sveitarfélagsins Voga á starfsárinu 2025-2026.
Farið var yfir helstu verkefni ungmennaráðs á starfsárinu 2025-2026.

3.Drög að frumvarpi um aðgang barna að samfélagsmiðlum

2610018

Lagt fram til umræðu í frumvarp um aðgang barna að samfélagsmiðlum, mál nr. S-132/2026 í samráðsgátt.
Rætt var um frumvarp um aðgang barna að samfélagsmiðlum. UNGVOG lagði til að ráðið vinni saman að umsögn um málið og sendi inn í samráðsgátt.

4.Æfingatími í körfubolta hjá Ungmennafélaginu Þrótti

2610020

Til umræðu að leggja til við Ungmennafélagið Þrótt að breyta æfingatímum í körfubolta hjá eldri iðkendum.
Rætt var um tímasetningu og fyrirkomulag körfuboltaæfinga hjá UMFÞ. Ráðið mun senda erindi til stjórnar Þróttar með ábendingum um æfingatíma, kostnað og mikilvægi samráðs við ungmenni.

Fundi slitið - kl. 17:20.

Getum við bætt efni síðunnar?