2609023
Erindið var áður á 3 fundi nefndarinnar þann 15 september 2026.
Áform Sveitarfélagsins Voga um stækkun leikskólans við Suðurgötu 5 með uppsetningu færanlegra kennslustofa voru í framhaldi grenndarkynnt fyrir eigendum og íbúum aðliggjandi fasteigna.
Gert er ráð fyrir þremur leikskóladeildum auk aukinnar aðstöðu fyrir starfsmenn. Áætluð stærð húsnæðisins er 351 m², með möguleika á 189 m² stækkun til suðurs síðar. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins, þar sem svæðið er skilgreint til samfélagsnota, og verður innan byggingarreits samkvæmt fyrirliggjandi lóðarblaði.
Grenndarkynningu er lokið og barst ein athugasemd á kynningartíma frá eigendum Hofgerðis 7b.
Í athugasemdinni er ekki gerð athugasemd við fyrirhugaðan fyrri áfanga, 351 m², en mótmælt er mögulegri 189 m² framtíðarstækkun. Jafnframt eru settar fram ábendingar varðandi mögulega tengibyggingu, aukna umferð og umferðaröryggi á svæðinu.
Erindið hefur málsnúmer 1078/2026 í skipulagsgátt.
Með hliðsjón af umfangi og eðli framkvæmdarinnar, sem er nauðsynlegur hluti af innviðum neysluvatnsveitu sveitarfélagsins, telur nefndin að um sé að ræða svo óverulegt frávik frá gildandi deiliskipulagi að ekki sé þörf á breytingu þess.
Með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 leggur nefndin til við bæjarstjórn að vikið verði frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, enda skerðist hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Umhverfis- og skipulagssviði er falið að annast áframhaldandi afgreiðslu málsins og frágang lóðar- og leyfismála.