Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

3. fundur 15. september 2026 kl. 16:30 - 18:50 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Andri Rúnar Sigurðsson formaður
  • Jóna Kristbjörg Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Bergur Álfþórsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Helena Ósk Óskarsdóttir
Fundargerð ritaði: Helena Ósk Óskarsdóttir sérfræðingur í skipulagsmálum
Dagskrá
Formaður leitar afbrigða vegna erindis nr. 12 og sækist eftir því að það verði sett á dagskrá.

1.Aðal- og deiliskipulagstillaga Hafnargötu 101

2501010

Fyrir liggur tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarsvæði og verslunar- og þjónustusvæði við Hafnargötu. Upphaflega var gert ráð fyrir að samhliða deiliskipulaginu yrði unnin breyting á aðalskipulagi. Sú breyting var síðar felld út úr málsmeðferðinni þar sem viðkomandi breyting var tekin inn í heildarendurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins, sem nú hefur öðlast gildi. Deiliskipulagstillagan er því unnin á grundvelli gildandi aðalskipulags.

Við áframhaldandi vinnslu tillögunnar hefur komið fram ósk framkvæmdaraðila um breytingu á fyrirkomulagi bílastæða þannig að öll tilskilin bílastæði verði staðsett á yfirborði lóðar í stað þess að hluti þeirra verði í bílageymslu. Heildarfjöldi bílastæða breytist ekki. Einnig er óskað eftir því að skipta upp byggingunni í þrjár aðskildar byggingar og staðsetja bílskúra á bílastæði. Meginforsendur skipulagsins breytast ekki frá þeim forsendum sem kynntar voru í skipulagslýsingu.

Erindið var síðast á fundi Skipulagsnefndar þann 20 maí 2025 þar sem kom fram að umsagnir bárust vegna skipulagslýsingar.
Við kynningu skipulagslýsingar bárust umsagnir m.a. frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og Vegagerðinni. Í umsögn Vegagerðarinnar er lögð áhersla á samráð við hafnardeild stofnunarinnar og að við áframhaldandi vinnslu skipulags verði tekið mið af sjávarflóðahættu, viðeigandi land- og gólfhæðum og eftir atvikum fyrirhuguðum varnargörðum og öðrum hafnarmannvirkjum. Hönnuði er falið að bregðast við umsögninni og uppfæra deiliskipulagsgögn eftir því sem við á.

Jafnframt verði við áframhaldandi vinnslu tillögunnar tekið mið af umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja varðandi samspil fyrirhugaðrar uppbyggingar og þeirrar athafnastarfsemi sem heimil er á nærliggjandi svæðum.
Nefndin fer fram á að fá kynningu á uppfærðri hugmynd hvað varðar bygginguna sjálfa. Þ.e.a.s þrjár byggingar í stað einnar, breytingu á bílastæðum og staðsetningu bílskúra til þess að taka upplýsta afstöðu í málinu.

2.Deiliskipulag íþróttasvæðis við Hafnargötu og Aragerði - Umsókn um breytingu vegna staðsetningu fjarskiptaaðstöðu

2609026

Fyrir liggur tillaga Landslags að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis, tjaldsvæðis og Aragerðis, dags. 30. apríl 2026, ásamt minnisblaði dags. 14. apríl 2026.

Míla hefur óskað eftir lóð fyrir fjarskiptaaðstöðu við bílastæði norðan Hafnargötu, sunnan tjaldsvæðis. Í tillögunni er afmörkuð 108 m² lóð fyrir fjarskiptaaðstöðuna, þar sem heimilt verður að reisa allt að 20 m² tækjahús og allt að 16 m hátt fjarskiptamastur.

Samhliða breytingunni eru núverandi endurvinnslugámar og veðurstöð færð inn á deiliskipulagsuppdrátt og fyrirkomulag bílastæða og göngustíga aðlagað að núverandi aðstæðum. Bílastæði meðfram Hafnargötu færist um u.þ.b. 3 m til suðurs, göngustígur sunnan bílastæðisins fellur út og bílastæðum fækkar úr 80 í 55. Jafnframt er ekki lengur gert ráð fyrir gegnumakstri um bílastæðið milli núverandi og fyrirhugaðrar aksturstengingar við Hafnargötu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis, tjaldsvæðis og Aragerðis, dags. 30. apríl 2026, og leggur til við bæjarstjórn að heimila tillöguna til auglýsingar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Umsókn um breytingu á deiliskipulagi - Grænuborgarhverfi 1. áfangi.

2604013

Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 21. júlí 2026 var samþykkt að grenndarkynna tillögu Grænubyggðar ehf. að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Grænuborgarhverfis 1. áfanga, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan var grenndarkynnt frá 10.08.2026 til 07.09.2026. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Grænuborgarhverfis 1. áfanga að lokinni grenndarkynningu, enda bárust engar athugasemdir við tillöguna.

Nefndin vísar tillögunni til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar. Að lokinni samþykkt verði deiliskipulagsbreytingin send HMS og auglýsing um samþykkt hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Fyrirspurn um lóðir til uppbyggingar á íbúðarhúsnæði

2609024

Fyrir liggur fyrirspurn frá Erni Héðinssyni, f.h. Kjarnahúsa ehf., varðandi möguleika á lóðaúthlutun fyrir fjögurra íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum. Fyrirspyrjandi nefnir Kirkjuholtsreit sem mögulegan kost en óskar jafnframt eftir upplýsingum um aðrar lóðir innan sveitarfélagsins sem gætu hentað fyrir slíka uppbyggingu.

Með erindinu fylgir hugmynd að teikningum að fjögurra íbúða húsi. Fram kemur að teikningarnar séu settar fram til viðmiðunar og séu ekki endanleg hönnun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu og felur Umhverfis- og skipulagssviði að vinna málið áfram.

5.Iðndalur 7 L207399 og Iðndalur 11 L209950 - spilda á milli lóða

2609022

Við yfirferð lóðamarka við Iðndal 7 og 11 hefur komið í ljós misræmi milli eldri lóðargagna og gildandi deiliskipulags. Á lóðarblaði frá árinu 2006 eru lóðirnar afmarkaðar þannig að landspilda er á milli þeirra og er hún ekki sýnd sem hluti hvorugrar lóðar. Í gildandi deiliskipulagi er hins vegar gert ráð fyrir breyttri lóðaskipan þar sem lóðirnar liggja saman og umrædd landspilda virðist hafa verið tekin inn í afmörkun aðliggjandi lóða. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er spildan þó enn í eigu sveitarfélagsins og ekki liggur fyrir hvort ráðstöfun hennar og breyting á lóðarmörkum samkvæmt deiliskipulagi hafi verið tekin til umfjöllunar.

Erindið er því lagt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd til umfjöllunar um næstu skref.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu til bæjarstjórnar til ákvörðunar um fyrirkomulag ráðstöfunar spildunnar og þau fjárhagslegu skilyrði sem henni skulu fylgja. Nefndin leggur þó til við bæjarstjórn að lóðin verði boðin lóðarhöfum aðliggjandi lóða til kaups.

6.Austurkot 3 L202744 - Fyrirspurn um fyrirhuguð byggingaráform gistihúss

2609025

Fyrir liggur fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Austurkoti 3. Óskað er eftir afstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar til þess að reisa varanlegt gistihús með 8-10 gistieiningum til skammtímagistingar. Fyrirhuguð bygging er um 150 m², um 30 m að lengd og 5 m að breidd, og gert er ráð fyrir að gistieiningarnar verði á varanlegum undirstöðum undir einu samfelldu þaki.

Málið tengist fyrri fyrirspurn sem tekin var fyrir á fundi skipulagsnefndar þann 22. apríl 2025. Þá var óskað eftir afstöðu til uppbyggingar 1-2 gistihúsa, um 35 m² að stærð hvort, til skammtímaleigu. Í afgreiðslu nefndar kom fram að ekkert deiliskipulag væri í gildi fyrir svæðið en að mögulegt væri að gera ráð fyrir gistingu við gerð deiliskipulags.

Samkvæmt gildandi aðalskipulagi eru sett sérstök skilyrði um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi innan íbúðarbyggðar og þar er m.a. fjallað um gististaði í flokki II, tegund c. Fyrirliggjandi erindi gerir nú ráð fyrir mun umfangsmeiri gististarfsemi en sú fyrirspurn sem áður var tekin fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar til fyrri afgreiðslu málsins frá 22. apríl 2025 og ákvæða gildandi aðalskipulags um gististarfsemi innan íbúðarbyggðar.
Fyrirliggjandi tillaga gerir ráð fyrir 8-10 gistieiningum í um 150 m² byggingu og er umfang fyrirhugaðrar starfsemi því verulega meira en í fyrri fyrirspurn. Með hliðsjón af umfangi tillögunnar telur nefndin að fyrirhuguð starfsemi, eins og hún er sett fram, falli ekki að þeim heimildum aðalskipulags sem gilda um minni gististaði innan íbúðarbyggðar.

Nefndin bendir umsækjanda á að endurskoða umfang og fyrirkomulag fyrirhugaðrar gististarfsemi með hliðsjón af ákvæðum gildandi aðalskipulags. Erindinu er því hafnað á þessu stigi.

7.Suðurgata 5 L190347 - Viðbygging við leikskóla

2609023

Fyrir liggja áform Sveitarfélagsins um stækkun leikskólans við Suðurgötu 5 með uppsetningu færanlegra kennslustofa. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði nýtt tímabundið, a.m.k. þar til nýr leikskóli rís við Grænuborg, sem stefnt er að verði innan 5-7 ára.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er gert ráð fyrir þremur leikskóladeildum auk aukinnar starfsmannaaðstöðu. Áætlað húsnæði er um 351 m² með möguleika á allt að 189 m² stækkun til suðurs síðar. Framkvæmdin er innan skilgreinds byggingarreits samkvæmt lóðarblaði og er svæðið skilgreint til samfélagsnota í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Á lóðarblaði er jafnframt sýndur byggingarreitur, áætlað fótspor byggingar og möguleg framtíðarstækkun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áform um stækkun leikskólans við Suðurgötu 5 með uppsetningu færanlegra kennslustofa, á grundvelli fyrirliggjandi gagna og lóðarblaðs, sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

8.Fallegri bær - Átak um fegrun bæjarins

2607021

Málið var áður tekið fyrir á fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar í júlí 2026 þar sem fjallað var um átak um fegrun bæjarins, íbúakönnun og umhverfisverðlaun. Málið er nú lagt fyrir að nýju með nánari útfærslu á fyrirkomulagi og næstu skrefum verkefnisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að íbúakönnun verði sett í loftið í október 2026 þar sem íbúum og öðrum hagaðilum gefst kostur á að koma á framfæri ábendingum og hugmyndum um umhverfi og ásýnd sveitarfélagsins. Jafnframt verði undirbúið tiltektar- og fegrunarátak á vordögum 2027 og að því loknu efnt til Umhverfisverðlauna sumarið 2027.

Sem hluti af verkefninu verði jafnframt útfært bréf til fasteignaeigenda þar sem talin er sérstök þörf á úrbótum á frágangi eða ásýnd nærumhverfis, með það að markmiði að hvetja til tiltektar og bættu umhverfi. Nánari útfærsla verkefnisins verði unnin áfram á umhverfis- og skipulagssviði í samráði við nefndina.

9.Græn svæði og leiksvæði í þéttbýli Voga

2609019

Lagt er til að farið verði yfir græn svæði og leiksvæði í þéttbýli Voga með það að markmiði að meta ástand þeirra, nýtingu og möguleika til úrbóta. Með yfirferðinni verði sérstaklega horft til aðgengis, öryggis, búnaðar, gróðurs og almennrar ásýndar svæðanna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna heildstæða yfirferð á grænum svæðum og leiksvæðum í þéttbýli Voga, með tilliti til ástands, aðgengis, öryggis, búnaðar, gróðurs og almennrar ásýndar.

Jafnframt verði skoðað framtíðarskipulag tiltekinna grænna svæða og metið hvort þörf sé á frekari skipulagsvinnu eða öðrum úrbótum. Í kjölfar yfirferðar verði lagðar fram tillögur að aðgerðum og forgangsröðun verkefna.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að huga að fjárheimild til þessa verkefnis við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. Jafnframt bendir nefndin á þann möguleika að nýta fjármagn úr verkefninu ,,Betra Ísland''.

10.Grænaborg - frágangur svæðis

2609020

Fjallað er um umgengni og frágang svæðis í Grænuborg. Borið hefur á slæmri umgengni á svæðinu og þörf er talin á að fara yfir núverandi ástand og meta hvaða úrbóta sé þörf.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur mikilvægt að bæta umgengni og frágang svæðisins í Grænuborg. Nefndin felur umhverfis- og skipulagssviði að fara yfir stöðu svæðisins, t.d. gerð gangstétta og almennan frágang lóða. Einnig að skilgreina nauðsynlegar úrbætur og móta tillögur um frágang.

11.Umferðaröryggi

2609021

Til umræðu er umferðaröryggi í Sveitarfélaginu Vogum og mögulegar aðgerðir til úrbóta. Farið hefur verið yfir ýmis verkefni sem komið geta til greina, meðal annars bætta aðkomu að Stóru-Vogaskóla, umferðargreiningar, endurskoðun gatnamóta Hafnargötu og Vogaafleggjara, lýsingu við gönguleiðir og endurnýjun umferðaröryggisáætlunar sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á áframhaldandi vinnu að bættu umferðaröryggi í sveitarfélaginu. Nefndin felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna áfram að forgangsröðun verkefna og leggja fram tillögur að næstu skrefum, með hliðsjón af mikilvægi, framkvæmdahæfni og kostnaði einstakra aðgerða.

12.UV-lýsingarbúnaðar fyrir neysluvatnsdreifikerfi í Vogum

2609032

Fyrir liggur erindi frá HS Veitum þar sem óskað er eftir úthlutun lóðar fyrir tengihús vegna uppsetningar UV-lýsingarbúnaðar fyrir neysluvatnsdreifikerfi í Vogum. Um er að ræða tengihús, 5,30 x 2,90 m að grunnfleti, sem hýsa mun búnað vegna lýsingar neysluvatns. Jafnframt er óskað eftir heimild til að hefja undirbúningsframkvæmdir, m.a. jarðvinnu og lagningu nauðsynlegra veitukerfa, áður en endanlegri afgreiðslu lóðar- og leyfismála er lokið. Fyrir liggur afstöðumynd með tillögu að staðsetningu mannvirkisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og fyrirhugaða staðsetningu tengihúss samkvæmt framlögðum gögnum með fyrirvara um legu göngu- og hjólreiðastígs yfir Vogastapa. Nefndin samþykkir fyrir sitt leiti framkvæmdina og felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna málið áfram.

Fundi slitið - kl. 18:50.

Getum við bætt efni síðunnar?