Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

2. fundur 18. ágúst 2026 kl. 16:30 - 18:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Andri Rúnar Sigurðsson formaður
  • Jóna Kristbjörg Stefánsdóttir aðalmaður
  • Gísli Stefánsson aðalmaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Gunnar Júlíus Helgason varamaður
Starfsmenn
  • Hanna Lísa Hafsteinsdóttir Sérfræðingur stjórnsýslu og verkefnastjóri menninga
Fundargerð ritaði: Hanna Lísa Hafsteinsdóttir Sérfræðingur stjórnsýslu
Dagskrá
Óskað var eftir því að taka mál nr. 5 málsnr. 2608033, inn með afbrigðum og var það samþykkt samhljóða.

1.Erindisbréf Umhverfis- og skipulagsnefndar

2608028

Fyrir nefndinni liggur erindisbréf Umhverfis- og skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Voga til kynningar. Erindisbréfið byggir á áður samþykktu erindisbréfi nefndarinnar frá fundi bæjarstjórnar þann 13 maí 2026, með þeim breytingum að nefndin er skipuð fimm fulltrúum og fimm til vara í stað sjö fulltrúa og sjö til vara og að fundir nefndarinnar eru að jafnaði haldnir einu sinni í mánuði í stað tvisvar í mánuði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur erindisbréfið til kynningar.

2.Breiðagerði 21 L196912 - Umsókn um stöðuleyfi

2606018

Fyrir liggur umsókn um stöðuleyfi fyrir breyttum strætisvagni á lóðinni Breiðagerði 21 sem er á skipulögðu frístundasvæði. Samkvæmt umsókn er fyrirhugað að koma vagninum fyrir á um 60 m² púða innan byggingarreits og nýta hann sem tímabundna gistieiningu. Vagninn er ökuhæfur og gert er ráð fyrir að hann standi á lóðinni í 12 mánuði.

Umsækjandi áformar að endurgera vagninn, m.a. með einangrun, nýjum gluggum og hurðum, klæðningu og innréttingum, auk þess sem gert er ráð fyrir palli og frágangi umhverfis. Fram kemur í erindinu að um sé að ræða tímabundna lausn þar til ráðist verður í byggingu framtíðarhúsnæðis á lóðinni.

Gunnar Júlíus Helgason vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla Umhverfis- og skipulagsnefndar: Nefndin telur að fyrirhuguð uppsetning strætisvagnsins falli ekki undir ákvæði 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 um stöðuleyfi og getur því ekki orðið við umsókninni á þeim grundvelli.
Nefndin tekur hins vegar jákvætt í fyrirhugaða tímabundna staðsetningu og notkun vagnsins á lóðinni og felur byggingarfulltrúa að leiðbeina umsækjanda um viðeigandi leyfis- eða tilkynningarferli samkvæmt byggingarreglugerð og ekki sé um meira en 12 mánuði að ræða.

3.Miðdalur 4 L202048 - Staðsetning sólskála

2608029

Fyrir liggur erindi vegna sólskála við Miðdal 4 sem er raðhús með þremur íbúðum. Við yfirferð málsins hefur komið í ljós að hluti sólskálans er staðsettur utan skilgreinds byggingarreits og er framkvæmdin því ekki að fullu í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti og gildandi deiliskipulag.
Málið er lagt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd til umfjöllunar og ákvörðunar um með hvaða hætti skuli brugðist við frávikinu.
Afgreiðsla Umhverfis- og skipulagsnefndar:Nefndin hefur farið yfir erindið og fyrirliggjandi gögn. Með hliðsjón af umfangi fráviksins og afstöðu aðliggjandi lóðarhafa telur nefndin að um svo óverulegt frávik frá gildandi deiliskipulagi sé að ræða að heimila megi frávikið án breytingar á deiliskipulagi, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram á þeim grundvelli.

4.Heildarskipulag hafnarsvæðis

2608026

Fyrir liggur fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar atvinnustarfsemi á hafnarsvæðinu við Hafnargötu 10, þar sem áform eru m.a. um rekstur gluggaverksmiðju.

Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði. Á svæðinu er jafnframt í gildi deiliskipulag sem gerir ráð fyrir athafnastarfsemi og liggur því fyrir ákveðið ósamræmi milli gildandi aðalskipulags og deiliskipulags hvað varðar landnotkun svæðisins. Áður hafa komið til umfjöllunar fyrirspurnir um atvinnu- og athafnastarfsemi á svæðinu sem skipulagsnefnd hefur tekið jákvætt í.

Samhliða liggja fyrir áform um uppbyggingu ÍB-6 við höfnina og hafa komið fram frekari hugmyndir um þróun og uppbyggingu hafnarsvæðisins. Fyrirliggjandi uppbyggingaráform undirstrika mikilvægi þess að hefja nú þegar vinnu við heildarskipulag hafnarsvæðisins, í samræmi við málefnasamning meirihlutans, og móta skýra framtíðarsýn fyrir svæðið í heild.

Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri, sat fundinn undir þessum lið.
Afgreiðsla Umhverfis- og skipulagsnefndar: Nefndin tekur jákvætt í fyrirhugaða uppbyggingu á atvinnustarfsemi við Hafnargötu 10 og telur rétt að unnið verði áfram með fyrirspurnina á grundvelli fyrirliggjandi skipulagsforsendna.

Samhliða verði hafin vinna við heildarskipulag hafnarsvæðisins í samræmi við málefnasamning meirihlutans. Við þá vinnu verði meðal annars horft til hafnarstarfsemi, atvinnu- og íbúðauppbyggingar, verslunar og þjónustu, strandlengju og tengingar svæðisins við byggðina. Sérstök áhersla verði lögð á að Hafnargata þróist sem aðlaðandi og vönduð tenging byggðarinnar við höfnina og sjóinn. Nefndin leggur áherslu á að samtal við lóðarhafa, fyrirtæki, hafnarnotendur og aðra lykilhagaðila hefjist snemma í vinnunni. Jafnframt verði tekin afstaða til samræmingar aðal- og deiliskipulags svæðisins eftir því sem vinnunni vindur fram.

Nefndin leggur áherslu á að uppbygging við Hafnargötu stuðli að aðlaðandi, lifandi og vandaðri götumynd, enda myndar gatan mikilvæga tengingu byggðarinnar niður að höfn og sjó. Við götuna verði lögð áhersla á starfsemi og byggð sem styrkir ásýnd og gæði götumyndarinnar, svo sem verslun, þjónustu og aðra starfsemi sem fellur vel að slíku umhverfi. Að baki götuhlið Hafnargötu geti komið til greina að gera ráð fyrir fjölbreyttari atvinnu- og athafnastarfsemi, að því gefnu að hún valdi ekki verulegum ónæðis- eða umhverfisáhrifum og falli vel að fyrirhugaðri þróun svæðisins. Sem hluti af heildarvinnunni verði tekin afstaða til samræmingar aðal- og deiliskipulags hafnarsvæðisins. Fyrirhuguð starfsemi við Hafnargötu 10 verði unnin áfram samhliða þeirri vinnu og eftir atvikum gerðar nauðsynlegar breytingar á skipulagsáætlunum.

5.Staða á neysluvatnsmálum í Sveitarfélaginu Vogum

2608033

Við reglubundið eftirlit með neysluvatni í Vogum greindust kólígerlar í sýnum úr dreifikerfi sveitarfélagsins. Ekki er um alvarlegt frávik að ræða og að mati Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja er ekki ástæða til sérstakra ráðstafana af hálfu íbúa eða fyrirtækja.
Þó niðurstöðurnar kalli ekki á sérstakar ráðstafanir íbúa telur sveitarfélagið rétt að upplýsa um stöðuna og þær niðurstöður sem liggja fyrir. Sveitarfélagið vinnur í nánu samstarfi við HS Veitur, rekstraraðila vatnsbólsins og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja að því að fylgja niðurstöðunum eftir.
Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri og Jóhann Ingimar Hannesson, bæjarverkstjóri, sitja fundinn undir þessum lið.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar: Niðurstöður reglubundins eftirlits kynntar fyrir nefndinni.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Getum við bætt efni síðunnar?