Skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Voga

2. fundur 24. febrúar 2004 kl. 18:00 - 19:00 Iðndal 2

2. fundur ársins 2004 í skipulags- og byggingarnefnd Vatnsleysustrandarhrepps

haldinn þriðjudaginn 24.02. kl.: 18 00 að Iðndal 2, Vogum.

Viðstaddir : Þórður Guðmundsson, formaður, Jón Ingi Baldvinsson, Gísli Stefánsson,

Hörður Harðarson og Gunnar Helgason, Kristján Baldursson byggingarfulltrúi, sem

jafnframt ritar fundargerð.

1. mál Guðjón Sverrir Agnarsson sækir um að byggja garðskála við hús sitt að

Aragerði 16.

Samþykkt. Samræmist lögum nr. 73/1997.

2. mál Baldur Haraldssson kt. 250562-4039 Furuhlíð 6 Sauðaárkróki sækir um

staðbundna löggildingu sem múrarameistari í Vatnsleysustrandarhreppi, skv.

umsókn dags. 27. janúar 2004. Með umsókninni fylgir staðfesting um

viðurkennngu og verkefnaskrá frá byggingarfulltrúanum í Skagafirði og á

Akranesi, ásamt ljósritum af sveinsbréfi og meistarabréfi.

Samþykkt samræmist gr. 37.2 í byggingarreglugerð nr. 44/1998

3. mál Rakel Burana Iðndal 1 sækir um stöðuleyfi fyrir gám í eitt ár samkvæmt

teikningu er gámurinn á lóð björgunarsveitarinnar Skyggnis.

Lóðarhafar og eigandi lóðar hefur gefið leyfi fyrir sitt leyti fyrir staðsetningu

gámsins.

Stöðuleyfi samþykkt í eitt ár samræmist gr. 71 í byggingarreglugerð nr.

441/1998

4. mál Sigurður Kristinsson Sunnuhlíð Vatnsleysuströnd sækir um að breyta

bílskúrshurð.

Samþykkt samræmist gr. 12 .4 í byggingarreglugerð nr. 441/1998

5. mál Fyrirspurn frá Sjómannadagsráði Grindavíkur varðandi 4x4 m. skilti í

Reiðskarði við Reykjanesbraut.

Frestað, ófullnægjandi gögn um málið.

6. mál Erindi frá Guðmundi Franz Jónassyni varðandi viðbyggingu við Hótel

Best. Hann sækir um stækkun lóðar fyrir sextán herbergja álmu til austurs.

Nefndin tekur jákvætt í erinndið, getur samræmst skipulagi á svæðinu.

7. mál Endurupptaka á byggingarleyfi fyrir Vogagerði 30.

Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps vísaði afgreiðslu málsins aftur til

Skipulags og byggingarnefndar á fundi sínum 10. febrúar s.l.

 

Borist hefur bréf frá lögfræðingi umsækjenda þar sem óskað er eftir að

afgreiðslu málsins verði frestað, Skipulags og byggingarnefnd verður við

þeim tilmælum.

8. mál Magnús Þór Einarsson sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahús á

lóð að Breiðagerði 28 Vatnsleysustrandarhreppi, samkvæmt teikningu eftir

Svan Bjarnason. Byggingarnefnd hefur áður samþykkt hús á þessari lóð, eða

9. maí 1986.

Samþykkt. Samræmist lögum nr. 73/1997. Áskilið er samþykki

eldvarnareftirlits.

 

Fleira ekki rætt fundi slitið kl 19.00

Getum við bætt efni síðunnar?