Skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Voga

3. fundur 28. febrúar 2006 kl. 18:00 - 20:40 Iðndal 2

3. fundur ársins 2006 í skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Voga haldinn

þriðjudaginn, 28. feb. kl. 18.00 að Iðndal 2, Vogum.

Þórður Guðmundsson, formaður, Jón Ingi Baldvinsson, Gísli Stefánsson, Hörður Harðarson

og Kristján Baldursson skipulags og byggingarfulltrúi, sem jafnframt ritar fundargerð.

1. mál Oddur Ragnar Þórðarson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að

Heiðardal 10 samkvæmt teikningum eftir teiknistofuna Kvarði.

Samþykkt samræmist lögum nr. 73/1997.

2. mál Nýtt hús ehf sækir um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði á lóðinni nr. 4

við Iðndal samkvæmt teikningum eftir Kristinn Ragnarsson.

Samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits, samræmist lögum nr.

73/1997.

3. mál Selhöfði ehf sækir um stækkun á byggingarreit að Jónsvör 7 um 5 m.

Eftir stækkun yrði reiturinn 600 m 2 eða 20 m x 30 m í stað 15m x 30 m.

Nefndin samþykkir breikkun á byggingarreit um 5 metra.

4. mál Bréf frá Kemis um breytta landnotkun í landi Stóra Knarrarness.

Bæjarstjórn vísaði málinu aftur til Skipulags og byggingarnefndar.

Frestað þar sem ekki hafa borist frekari gögn.

5. mál Jarðvélar ehf sækja um stöðuleyfi fyrir kaffiskúr við mislæg gatnamót við

Vogaveg.

Stöðuleyfi samþykkt meðan framkvæmdir standa yfir.

6.mál Margrét Salóme Sigurðardóttir og Vignir Friðbjörnsson sækja um að fá

leyfi fyrir hárgreiðslustofu í bílskúr að Miðdal 2 og breyta framhlið bílskúrs

þannig að í stað bílskúrshurðar verði gluggar sbr. hjálagða tillögu að breytingu.

Til að hægt sé að taka efnislega afstöðu til erindisins þarf að liggja fyrir

samþykki nágranna.

7.mál Kynning á Aðlskipulagi Reykjanesbæjar.

8.mál Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf sækir um byggingarleyfi fyrir tveimur

fjölbýlishúsum á lóðinni Aragerði 2-4.

Umsókninni hafnað, nefndin telur að sökum þrengsla í götunni þurfi að gera ráð

fyrir fleiri bílastæðum á lóðinni.

Breyta númerum húsanna þannig að 2 verði 4 og 4 verði 2.

 

9. mál Sumarbústaðabygging til flutnings á lóð Hafnargötu 6.

Stöðuleyfi samþykkt allt að einu ári.

 

Önnur mál

1.mál Helga Ragnarsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að

Akurgerði 24, samkvæmt teikningum eftir teiknistofuna Arko.

Samþykkt samræmist lögum nr.73/1997.

2. mál Orkulagnir ehf sækja um byggingarleyfi fyrir raðhús að Heiðargerði 27,

27a og 27b samkvæmt teikningum eftir Kristinn Ragnarsson.

Samþykkt samræmist lögum nr. 73/1997.

3. mál Vilhjálmur A Erlendsson og Svava Sigmundsdóttir Heiðargerði 13

Vogum sækja um byggingarleyfi fyrir bílskúr á lóðinni Heiðargerði 13. bílskúrinn

er samkvæmt upphaflegri teikningu samþykktri 15.júní 1976 að öðru leyti en því

að hann er lengdur um 2,3 metra.

Samþykkt samræmist lögum nr.73/1997.

4. mál Fyrirspurn frá Söndru Gísladóttur Heiðargerði 29 A Guðmundu

Þórisdóttr Heiðargerði 29 B og Sigvalda Eggertssyni Heiðargerði 29B um

stækkun parhússins um 3 metra í báða enda.

Jákvætt er tekið í erindið.

5. mál Pétur Einarsson, Margrét Aðalsteinsdóttir og Tómas Örn Pétursson sækja

um leyfi til að byggja hús á tveimur hæðum á lóðinni Suðurgata 7 Vogum.

Frestað vegna ófullnægjandi gagna

6. mál Ásbjörn Helgason Hafnargata 24 Sækir um að breikka gróðurhús sem er

viðbyggt húsinu um 1.6 metra.

Samþykkt samræmist lögum nr. 73/1997.

7. mál Guðmundur Lúther Sverrisson kt. 140962-3419 til heimilis Aðalstræti

105, 450 Patreksfjörður, sækir um staðfestingu Skipulags og byggingarnefndar á

meistararéttindum sínum í pípulögnum í sveitarfélaginu Vogar. Sbr. 37.

gr.reglugerðar nr. 441/1998

Samþykkt.

8. mál Ríkharður Bragason sækir um byggingarleyfi fyrir bílskúr á lóðinni

Fagridalur 10 samkvæmt teikningum eftir Hönnun.

 

Samþykkt samræmist lögum nr. 73/1997.

9. mál Kristín Sigurjónsdóttir sækir um fyrir hönd Aðalkaups ehf kt. 490902-

2010 að sameina eignarhluta félagsins í Iðndal 2 merkta 105 og 106 og setja

útihurð á austurhlið fyrir aðgengi að vörum í kæli. Auk þess sækir hún um

ljósaskilti fyrir framan verslun.

Samþykkt .

Fleira ekki rætt fundi slitið kl 20.40.

Getum við bætt efni síðunnar?