Íþróttanefnd og tómstundanefnd

13. fundur 07. maí 2007 kl. 18:00 - 18:46 Iðndal 2

Fundur haldinn í ÍTV mánudaginn 7. maí 2007
kl. 18:00 að Iðndal 2, Vogum.

Mættir eru: Bergur Álfþórsson, Brynhildur Hafsteinsdóttir, Magnús Hauksson, Vignir
Arason. G. Helga situr fundinn Brynhildur ritar fundargerð í tölvu.
Formaður leitar afbrigða og óskar eftir að taka til afgreiðslu styrkbeiðnir úr
afreksmannasjóði, samþykkt samhljóða að taka fyrir undir 7. lið.

1. Útideild félagsmiðstöðvar.
Tómstundarfulltrúi kynnir tillögur að vinnuramma útideildar.
Tómstundarfulltrúa falið að fullklára reglurnar og leggja fram til afgreiðslu.
2. Fjölskyldudagur Sveitarfélagsins Voga.
Rætt um staðsetningu á handverksmarkaði ef næg þátttaka fæst. Fyrstu drög af
dagskrá lögð fram. Boðað til samráðsfundar í lok maí.
3. Lóð Félagsmiðstöðvar við íþróttamiðstöð.
Nefndin óskar eftir því að lóð íþróttamiðstöðvarinnar verði lýst sem
reyklaustsvæði. Og auglýsingar þar að lútandi hengdar upp.
4. Vinnuskóli.
Tómstundafulltrúi upplýsir um stöðu mála og að búið sé að ráða inn þrjá
flokkstjóra.
5. Skýrsla tómstundafulltrúa um þing tómstunda og íþróttafulltrúa.
Tómstundarfulltrúi upplýsir að á þinginu var farið yfir stöðuna í
sveitarfélögunum á landinu.
6. Eineltisáætlun sbr fundargerð bæjarstjórnar dags 02.05.2007.
ÍTV bendir á að Íþrótta og tómstundarfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við
grunnskóla í eineltismálum samkvæmt s.k. Olweusaráætlun.
7. Afreksmannasjóður.
Óskir um styrki úr sjóðnum. Tvær umsóknir liggja fyrir.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að Huldu Hrönn Agnarsdóttur verði veittur
ferðastyrkur að upphæð 50.000 kr.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að Ásgeiri Erni Þórssyni verði veittur
ferðastyrkur að upphæð 50.000 kr.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl:18.46

Getum við bætt efni síðunnar?