Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga

73. fundur 19. mars 2018 kl. 19:30 - 22:00 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Þorvaldur Örn Árnason formaður
  • Guðmundur Kristinn Sveinsson varaformaður
  • Tinna Hallgrímsdóttir aðalmaður
  • Davíð Harðarson varamaður
Fundargerð ritaði: Stefán Arinbjarnarson frístunda- og menningarfulltrúi
Dagskrá

1.Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga.

1802033

FMN ákvað á síðasta fundi sínum að standa fyrir afhendingu menningarviðurkenninga við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal á sumardaginn fyrsta, 19. apríl n.k. milli kl. 15:00 og 18:00.
Búið er að óska eftir tilnefningum frá íbúum og undirbúningur farinn af stað. Íbúar eru hvattir til að koma með listmuni og handverk til að sýna við þetta tilefni.

Afgreiðsla FMN.
Ákveðið hverjir hljóta menningarviðurkenningar.

2.Vogaþrek-heilsueflandi samfélag 2018.

1803033

FMN hefur borist erindi frá Þrótti. Þar er beðið um niðurfellingu á leigu á íþróttasal vegna Vogaþreks.

Afgreiðsla FMN.
Nefndin lýsir yfir ánægju með að komið sé af stað almenningsíþróttaverkefni í Vogum með reyndum þjálfara og góðri þátttöku.
FMN telur að sveitarfélagið eigi að styðja verkefnið.

3.Áfangastaðaáætlun Reykjaness

1801027

Drög að áfangastaðaáætlun Reykjaness hafa verið send bæjaryfirvöldum og sendi bæjarráð Voga drögin til FMN.

Afgreiðsla FMN.
Lagt fram.

4.Sumarstörf í Vogum 2018

1803035

Búið er auglýsa sumastörf í Vogum og er útlit fyrir að vel muni takst að manna þau. Nemendum vinnuskóla hefur fækkað síðustu sumur og vilja menn fyrst og fremst tengja það við gott atvinnuástand. Útlit er fyrir að sumarstarfið verði með svipuðu sniði og verður gefinn út bæklingur nú sem endranær.

Afgreiðsla FMN.
Málið rætt.

5.Safnahelgi á Suðurnesjum 2018

1802032

Safnahelgi á Suðurnesjum fór fram helgina 10. - 11. mars. Dagskrá var í sveitarfélaginu Vogum og ber þar helst að nefna metnaðarfulla dagskrá á Kálfatjörn sunnudaginn 11. mars. Þar stóðu Frístunda- og menningarnefnd, Kálfatjarnarkirkja og Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar fyrir málþingi um Stefán Thorarensen, auk þess sem skólasafnið í Norðurkoti var opið.

Afgreiðsla FMN.
FMN lýsir ánægju með hvernig til tókst með Safnahelgi og þakkar þeim sem komu að skipulagi og framkvæmd.

Fundi slitið - kl. 22:00.

Getum við bætt efni síðunnar?