Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
139. fundur
22. október 2026 kl. 16:30 - 18:45 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Kristín Arna Hjaltadóttirformaður
Hilmar Ólafssonaðalmaður
Sigurður Rafn Vignissonaðalmaður
Berglind Petra Jóhannsdóttiraðalmaður
Adrian Krawczuk1. varamaður
Starfsmenn
Ásta María GuðmundsdóttirVerkefnastjóri
Fundargerð ritaði:Ásta María GuðmundsdóttirVerkefnastjóri á fjölskyldusviði
Dagskrá
1.Kynning svæðistöðva íþróttahéraða á Suðurnesjum
2610030
Kynning á starfsemi svæðisstöðva íþróttahéraða.
Kynningin lögð fram.
Nefndin þakkar fulltrúum svæðisstöðva íþróttahéraða, Petru Ruth og Sigurði Friðriki, fyrir kynninguna og leggur áherslu á mikilvægi öflugs samstarfs um eflingu íþrótta- og frístundastarfs barna og ungmenna á Suðurnesjum með það að markmiði að efla íþróttastarf og skapa fjölbreytt tækifæri til þátttöku fyrir börn og ungmenni.
Í ljósi þeirrar greiningarvinnu vegna mögulegrar sameiningar íþróttahéraðanna á Suðurnesjum, óskar nefndin eftir því að fá kynningu á niðurstöðum hennar, þegar þær liggja fyrir. Nefndin telur mikilvægt að fá upplýsingar um hvaða áhrif möguleg sameining gæti haft á íþróttastarf, íþróttafélög og hagsmunafélög sveitarfélagsins Voga.
Lagt fram uppfært erindisbréf Ungmennaráðs fyrir 2026-2027.
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagt, uppfært erindisbréf Ungmennaráðs Voga fyrir starfsárið 2026?2027 og vísar því til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að ungmenni hafi vettvang til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í ákvörðunum sem varða hagsmuni þeirra. Með breytingum á erindisbréfi Ungmennaráðs er meðal annars leitast við að skýra fyrirkomulag við skipan ráðsins, tryggja samfellu í starfi þess og efla þátttöku ungmenna í málefnum sveitarfélagsins.
Birting fundargagna: Erindisbréf Ungmennaráðs verður ekki birtur með fundargerðinni, með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum
3.Voganeistinn framtakssjóður
2608034
Lagt fram minnisblað og drög að reglum um Voganeistann.
Afgreiðsla frístunda- og menningarnefndar: Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í framlagða tillögu um stofnun Voganeistans, framtakssjóðs Sveitarfélagsins Voga og samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðar reglur um sjóðinn. Málinu er vísað til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Bókun frístunda- og menningarnefndar: Frístunda- og menningarnefnd telur mikilvægt að skapa vettvang fyrir einstaklinga, hópa, félagasamtök og fyrirtæki til að þróa og hrinda í framkvæmd verkefnum sem stuðla að öflugu og fjölbreyttu samfélagsstarfi í sveitarfélaginu.
Þá leggur nefndin áherslu á að hlutverk sjóðsins verði skýrt gagnvart öðrum styrkjum og viðurkenningum sveitarfélagsins, sjóðurinn verði aðgengilegur, úthlutunarreglur skýrar, jafnræðis og gagnsæis verði gætt við mat á umsóknum og úthlutun styrkja og að fjármögnun hans verði tekin til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar.
Í því samhengi leggur nefndin áherslu á að taka reglur um mennta-, menningar- og afrekssjóð til endurskoðunar.
Birting fundargagna: Drög að reglum um Voganeistann verða ekki birtur með fundargerðinni, með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.
Lagt fram til umræðu samningagerðir við félagasamtök í sveitarfélaginu.
Afgreiðsla frístunda- og menningarnefndar: Frístunda- og menningarnefnd fagnar að vinna við endurnýjun samstarfssamninga sveitarfélagsins við félagasamtök sé hafin í samráði við þau. Nefndin tilnefnir Kristínu Örnu Hjaltadóttur sem fulltrúa sinn í vinnuna.
Bókun frístunda- og menningarnefndar: Félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu í Sveitarfélaginu Vogum. Nefndin telur mikilvægt að endurskoða samstarfssamninga sveitarfélagsins við félögin með heildstæðum hætti og skapa skýran grundvöll fyrir áframhaldandi samstarf.
Samningar þurfa að byggja á skýrum forsendum, gagnkvæmum skyldum og gagnsæi um fjárframlög og annan stuðning sveitarfélagsins, þar á meðal afnot af húsnæði og aðstöðu. Við samningagerðina verði tekið mið af fjölbreyttri starfsemi og aðstæðum einstakra félaga.
Lagt fram minnisblað verkefnahóps um frístundaakstur.
Afgreiðsla frístunda- og menningarnefndar: Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að verkefnið verði unnið áfram í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga verði lögð fram tillaga að reglum um samgöngustyrk til afgreiðslu. Í síðari áfanga verði unnið að útfærslu frístundarútu sem eins árs tilraunaverkefnis og skoðað mögulegt samstarf um framkvæmd akstursins. Þá leggur nefndin áherslu á að framkvæmdin verði að veruleika eins fljótt og kostur er.
Kostnaðarmat, rekstrarfyrirkomulag og samspil úrræðanna verði lagt fyrir áður en endanleg ákvörðun um framkvæmd verður tekin.
Málinu er vísað til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Bókun frístunda- og menningarnefndar: Frístunda- og menningarnefnd leggur ríka áherslu á að börn og ungmenni í Sveitarfélaginu Vogum hafi jöfn tækifæri til þátttöku í fjölbreyttu íþrótta- og frístundastarfi, óháð búsetu eða aðstæðum fjölskyldna. Aðgengi að slíku starfi er mikilvægur þáttur í velferð barna, félagslegri þátttöku og lífsgæðum fjölskyldna.
Nefndin fagnar þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram og telur innleiðingu samgöngustyrks mikilvægt fyrsta skref í að draga úr fjárhagslegri byrði og akstursálagi fjölskyldna vegna frístundastarfs barna utan sveitarfélagsins.
Jafnframt leggur nefndin ríka áherslu á að undirbúningi frístundarútu verði haldið áfram með markvissum hætti og að unnið verði að nauðsynlegri útfærslu, kostnaðarmati og skipulagi þjónustunnar svo unnt verði að hefja akstur sem allra fyrst. Nefndin telur mikilvægt að samgöngustyrkurinn og frístundarútan verði útfærð sem úrræði sem styðja hvort annað og mæta ólíkum þörfum fjölskyldna í sveitarfélaginu.
Birting fundargagna: Drög að reglum um samgöngustyrk verður ekki birtur með fundargerðinni, með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.
Lögð fram drög að breyttum reglum við kjör á íþróttamanni ársins.
Afgreiðsla frístunda- og menningarnefndar: Nefndin telur mikilvægt að reglur um viðurkenningar sveitarfélagsins séu skýrar og endurspegli þær áherslur sem lagðar eru á öflugt íþrótta-, frístunda- og menningarstarf í sveitarfélaginu.
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðar breytingar að undanskyldum breytingum á reglum um hvatningaverðlaun, sem lagt er til að haldist inni og verður þá 12. ? 15. gr. breyttra reglna. Lagt er til að við 12. gr. bætist heimild til að veita hópum tilnefningu til hvatningaverðlauna. Nefndin vísar reglunum með framangreindri breytingu til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Bókun frístunda- og menningarnefndar: Nefndin fagnar sérstaklega þeirri nýjung að tekin verði upp viðurkenningin Sjálfboðaliði ársins, enda er óeigingjarnt starf sjálfboðaliða ein af mikilvægustu stoðum öflugs og fjölbreytts samfélagsstarfs. Jafnframt telur nefndin mikilvægt að hvatningarverðlaun verði áfram hluti af viðurkenningum sveitarfélagsins. Verðlaunin gegna mikilvægu hlutverki við að hvetja unga og efnilega íþróttaiðkendur áfram, vekja athygli á framförum þeirra og metnaði og stuðla að jákvæðri þátttöku í íþróttastarfi.
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að reglum um kjör íþróttamanns ársins og sjálfboðaliða ársins, með þeirri breytingu að ákvæði um hvatningarverðlaun verði áfram hluti reglnanna. Nefndin vísar reglunum með framangreindri breytingu til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Birting fundargagna: Drög að reglum um íþróttamann ársin verður ekki birtur með fundargerðinni, með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum.
Nefndin þakkar fulltrúum svæðisstöðva íþróttahéraða, Petru Ruth og Sigurði Friðriki, fyrir kynninguna og leggur áherslu á mikilvægi öflugs samstarfs um eflingu íþrótta- og frístundastarfs barna og ungmenna á Suðurnesjum með það að markmiði að efla íþróttastarf og skapa fjölbreytt tækifæri til þátttöku fyrir börn og ungmenni.
Í ljósi þeirrar greiningarvinnu vegna mögulegrar sameiningar íþróttahéraðanna á Suðurnesjum, óskar nefndin eftir því að fá kynningu á niðurstöðum hennar, þegar þær liggja fyrir. Nefndin telur mikilvægt að fá upplýsingar um hvaða áhrif möguleg sameining gæti haft á íþróttastarf, íþróttafélög og hagsmunafélög sveitarfélagsins Voga.