Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
138. fundur
24. september 2026 kl. 16:30 - 17:45 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Eva Björk Jónsdóttirvaraformaður
Kristín Arna Hjaltadóttirformaður
Hilmar Ólafssonaðalmaður
Sigurður Rafn Vignissonaðalmaður
Berglind Petra Jóhannsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
Ásta María GuðmundsdóttirVerkefnastjóri
Fundargerð ritaði:Ásta María GuðmundsdóttirVerkefnastjóri
Dagskrá
1.Voganeistinn framtakssjóður
2608034
Björg Ásta Þórðardóttir bæjarstjóri sveitarfélagsins fer með kynningu á stofnun Voganeistans.
Málinu frestað.
2.Kynning á KIWANIS starfi
2609044
Kynning frá Kiwanis vegna fyrirhugaðrar stofnunar Kiwanis klúbbs í sveitarfélaginu.
Nefndin þakkar Kiwanis mönnum fyrir góða kynningu og fagnar áhuga og vilja til þess að stofna klúbb í sveitarfélaginu. Fyrirhugaður er kynningarfundur og hvetur nefndin íbúa til þess að fjölmenna.
3.Tillaga A-listans um umsókn Sveitarfélagsins Voga um FIFA Arena-knattspyrnuvöll
2609033
Lögð fram til kynningar umsókn sveitarfélagsins til Knattspyrnusambands Íslands vegna verkefnsins FIFA Arena, sem snýr að því að byggja sparkvelli víðs vegar um heim.
Frístunda- og menningarnefnd tekur afgreiðslu bæjarráðs til kynningar og fagnar því að kannaður sé möguleiki á að Fifa Arena völl í sveitarfélagið. Nefndin telur að slík aðstaða gæti orðið góð viðbót við íþrótta- og frístundastarf í sveitarfélaginu.
4.Ungmennaráð Voga 2026
2601034
Lagt fram til kynningar umsóknir í Ungmennaráð sveitarfélagsins fyrir starfsárið 2026 - 2027.
Frístunda- og menningarnefnd tekur framlagðar umsóknir í ungmennaráð sveitarfélagsins Voga fyrir starfsárið 2026-2027 til kynningar og fagnar áhuga ungmenna á starfi í þágu sveitarfélagsins.
5.Ungmennaráð Voga 2026
2601034
Lagt fram uppfært erindisbréf ungmennaráðs fyrir starfsárið 2026 - 2027.
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf UNGVOG með þeirri breytingu að 5. gr. kveði á um að fulltrúi UNGVOG verði boðaður til þátttöku á nefndarfundi þegar til umfjöllunar eru mál sem sérstaklega varða hagsmuni barna og ungmenna, í stað fastrar setu áheyrnarfulltrúa. Málinu vísað til samþykktar í bæjarráð.
6.Opnun ungmennahúss
2609043
Lagt fram minnisblað frá forstöðumanni félagsmiðstöðvarinnar i vegna opnunar á ungmennahúsi í félagsmiðstöðinni.
Frístunda- og menningarnefnd fagnar tillögu um ungmennahús fyrir 16?18 ára ungmenni í Vogum. Nefndin telur mikilvægt að skapa þessum aldurshópi öruggan og uppbyggilegan vettvang til samveru og þátttöku í sínu nærumhverfi og að viðhalda þannig tengslum sveitarfélagsins við ungmennin eftir að grunnskólagöngu lýkur.
Nefndin samþykkir að lagt verði af stað með verkefnið til reynslu í tvo mánuði í samræmi við fyrirliggjandi tillögu. Að reynslutíma loknum verði verkefnið metið með hliðsjón af þátttöku, reynslu starfsfólks og viðhorfum ungmennanna og niðurstöður lagðar fyrir nefndina áður en ákvörðun verður tekin um framhald.
7.Kvörtun vegna frisbígolfvallar við íbúðabyggð
2609041
Lagt fram erindi frá íbúa vegna staðsetningu frisbígolfvallar við íbúabyggð.
Frístunda- og menningarnefnd þakkar fyrir erindið og þær ábendingar sem þar koma fram. Nefndin telur ástæðu til að skoða hvort gera megi breytingar á fyrirkomulagi frisbígolfaðstöðunnar til að koma til móts við þær áhyggjur sem fram koma í erindinu. Nefndin felur umhverfis- og skipulagssviði að skoða aðstæður og mögulegar úrbætur og leggja niðurstöður fyrir nefndina að nýju.