Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
135. fundur
29. júní 2026 kl. 16:30 - 17:40 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Eva Björk Jónsdóttirvaraformaður
Kristín Arna Hjaltadóttirformaður
Hilmar Ólafssonaðalmaður
Sigurður Rafn Vignissonaðalmaður
Berglind Petra Jóhannsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
Hólmfríður J. ÁrnadóttirSviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði:Hólmfríður J. Árnadóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða um að taka inn mál nr. 2; kosning varaformanns og mál nr. 7; yfirferð á stöðu íþrótta- og tómstundastefnu á dagskrá. Samþykkt samhljóða.
1.Erindisbréf frístunda- og menningarnefndar
2606046
Farið yfir erindisbréf frístunda- og menningarnefndar.
Erindisbréf samþykkt.
2.Kosning varaformanns
2606047
Kosning varaformanns frístunda- og menningarnefndar.
Sviðsstjóri og forstöðukona íþróttamiðstöðvar Sveitarfélagsins Voga fara yfir stöðuna á málefnum líkamsræktar. Ásta María Guðmundsdóttir forstöðukona íþróttamiðstöðvar og verkefnisstjóri heilsueflandi samfélags situr fundinn undir þessum lið.
Nefndin leggur áherslu á að innan sveitarfélagsins sé sé góð líkamsræktaraðstaða og óskar eftir því að fá að fylgjast með framvindu málsins. Verkefnisstjóri heilsueflandi samfélags var forfölluð.
5.Frístundarúta
2606041
Fjallað um fyrirhugaða frístundarútu.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að hafinn verði undirbúningur að því að setja á laggirnar frístundarútu sem tilraunaverkefni til eins árs, í samræmi við málefnasamning meirihluta bæjarstjórnar. Markmið verkefnisins er að draga úr brottfalli barna úr íþrótta- og tómstundastarfi, bæta aðgengi að frístundastarfi og stuðla að jöfnum tækifærum til þátttöku.
Frístunda- og menningarnefnd leggur áherslu á að ráðist verði í markvissa þarfagreiningu á þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi, með það að markmiði að kortleggja hvar iðkendur stunda æfingar og hvaða samgönguþarfir eru til staðar.
Markmið greiningarinnar er að fá betri yfirsýn yfir raunverulegt aðgengi að starfinu og greina hindranir sem kunna að vera til staðar, m.a. vegna fjarlægðar eða samgangna.
Í framhaldinu telur nefndin mikilvægt að skoðað verði sérstaklega hvernig hægt er að styðja við barnafjölskyldur sem þurfa að aka á æfingar, m.a. með frístundarútu og útfærslu á samgöngustyrk.
Nefndin felur bæjarstjóra, í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs og formann nefndarinnar, að vinna málið áfram, þar á meðal kostnaðarmat, mögulega útfærslu og samráð við viðeigandi hagaðila. Tillaga að útfærslu verði lögð fyrir frístunda- og menningarnefnd á næsta fundi.
6.Félagsstarf eldri borgara
2606042
Sviðsstjóri fer yfir stöðuna á félagsstarfi eldri borgara í Sveitarfélaginu Vogum.
Sviðsstjóri fór yfir félagsstarfs eldri borgara í sveitarfélaginu og greindi frá því öfluga og fjölbreytta starfi sem þar er unnið.
Nefndin fagnar þeirri uppbyggingu og þeirri jákvæðu þróun sem á sér stað í málaflokknum og leggur áherslu á mikilvægi félagsstarfs fyrir lífsgæði, virkni og félagslega þátttöku eldri borgara.
Frístunda- og menningarnefnd vill koma á framfæri þökkum til sviðsstjóra og þeirra sem koma að starfinu fyrir gott og mikilvægt framlag.
7.Staða á vinnu við íþrótta- og tómstundastefnu Sveitarfélagsins Voga
2602029
Sviðsstjóri fer yfir stöðuna á vinnu við íþrótta- og tómstundastefnu.
Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra að vinna áfram að vinnu við íþrótta- og tómstundastefnu ásamt stýrihóp. Í honum sitja varaformaður, fulltrúi meirihluta og fulltrúi minnihluta. Með nefndinni starfa sviðsstjóri og verkefnisstjóri heilsueflandi samfélags.
8.Fjölskyldudagar 2026
2601018
Sérfræðingur stjórnsýslu fer yfir dagskrá Fjölskyldudaga. Hanna Lísa Hafsteinsdóttir sérfræðingur stjórnsýslu situr fundinn undir þessum lið.