Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
133. fundur
24. mars 2026 kl. 17:00 - 19:00 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Eva Björk Jónsdóttiraðalmaður
Anna Karen Gísladóttiraðalmaður
Samúel Þórir Drengssonaðalmaður
Guðmann Rúnar Lúðvíkssonformaður
Björg Ásta Þórðardóttiraðalmaður
Starfsmenn
Hólmfríður J. ÁrnadóttirSviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði:Hólmfríður J. Árnadóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.Umgengnisreglur í íþróttamiðstöð Voga
2602028
Farið yfir tillögur að orðalagi í reglum um aðgengi að íþróttamiðstöð.
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir uppfærðar umgengnisreglur í íþróttamiðstöð Voga með tilheyrandi breytingum.
Markmið breytinganna er að setja skýrari ramma um notkun á íþróttamannvirkjum þegar aðstaða er laus og ekki er skipulagt íþróttastarf í gangi, með hagsmuni og góða upplifun íbúa og starfsfólks að leiðarljósi.
Samþykkt.
2.Staða á vinnu við íþrótta- og tómstundastefnu Sveitarfélagsins Voga
2602029
Sviðsstjóri fer yfir stöðuna á vinnu við íþrótta- og tómstundastefnu.
Nefndin felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram.
Lagt fram.
3.Forvarnarstefna Sveitarfélagsins Voga
2603005
Sviðsstjóri leggur fyrir forvarnarstefnu Sveitarfélagsins Voga.
Nefndin felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna áfram að forvarnarstefnu Sveitarfélagsins Voga í samræmi við umræður fundarins.
Lagt fram.
4.Menningarverðlaun
2603022
Nefndin felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að hefja undirbúning og auglýsa eftir tilnefningum. Menningarverðlaun sveitarfélagsins verða veitt 17. júní 2026.
Lagt fram.
5.Spurningalisti vegna íþrótta- og tómstundastefnu
2603021
Samþykkt.
6.Kynning á upplýsingaskjá í íþróttahúsi
2603029
Frístunda- og menningarnefnd fagnar þessu framtaki sem leiðir til aukinnar upplýsingagjafar til íbúa. Jafnframt er lagt til að skoðað verði að nýta sambærilegar lausnir á fleiri stöðum en í íþróttahúsinu.
Lagt fram.
Markmið breytinganna er að setja skýrari ramma um notkun á íþróttamannvirkjum þegar aðstaða er laus og ekki er skipulagt íþróttastarf í gangi, með hagsmuni og góða upplifun íbúa og starfsfólks að leiðarljósi.
Samþykkt.