Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga

124. fundur 28. september 2026 kl. 16:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Eva Björk Jónsdóttir formaður
  • Karel Ólafsson aðalmaður
  • Hulda Blöndal varaformaður
  • Anna Karen Gísladóttir aðalmaður
  • Petra Ruth Rúnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta María Guðmundsdóttir Verkefnastjóri
  • Erna Margrét Gunnlaugsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Henríetta Ósk Melsen áheyrnarfulltrúi
  • Katrín Huld Káradóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hilmar Egill Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásta María Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Skóladagatal Stóru-Vogaskóla 2026-2027

2609049

Lögð fram ósk Stóru-Vogaskóla um breytingar á skóladagatali starfsárið 2026-2027.
Fræðslunefnd samþykkir framlagða ósk Stóru-Vogaskóla um breytingar á skóladagatali skólaársins 2026-2027. Breyting felst í að skipulagsdagur verði færður frá 23. nóvember til 24. nóvember.

2.Starfsáætlun Stóru-Vogaskóla 2026-2027

2609048

Lögð fram til kynningar starfsáætlun Stóru-Vogaskóla fyrir starfsárið 2026-2027.
Skólastjóri kynnti starfsáætlun Stóru-Vogaskóla fyrir skólaárið 2026-2027 og fór yfir helstu áherslur skólastarfsins.

Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlunina og þakkar fyrir greinargóða kynningu.

3.Vogamódelið

2608082

Lagt fram minnisblað Bjargar Ástu Þórðardóttur bæjarstjóra um stofnun Vogamódelsins.
Fræðslunefnd samþykkir að skipaður verði starfshópur um útfærslu og undirbúning innleiðingar Vogamódelsins við Heilsuleikskólann Suðurvelli.

Í starfshópnum sitji sviðsstjóri fjölskyldusviðs eða staðgengill, leikskólastjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, fulltrúi foreldra tilnefndur af foreldraráði og fulltrúar fræðslunefndar. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs eða staðgengill leiði vinnu hópsins.

Fræðslunefnd tilnefnir Karel Ólafsson og Önnu Kareni Gísladóttur sem fulltrúa sína í starfshópnum.

Starfshópnum er falið að útfæra tillögu að fyrirkomulagi Vogamódelsins og leggja mat á faglegar og fjárhagslegar forsendur þess. Hópurinn skili tillögu og kostnaðarmati til umfjöllunar í fræðslunefnd fyrir 20. október 2026

4.Leikskóladagatal Heilsuleikskólans Suðurvalla starfsárið 2026 - 2027

2609050

Lögð fram ósk frá Heilsuleikskólanum Suðurvöllum um breytingu á leikskóladagatali fyrir starfsárið 2026-2027.
Fræðslunefnd samþykkir framlagða ósk Heilsuleikskólans Suðurvalla um breytingar á leikskóladagatali fyrir starfsárið 2026-2027. Breytingin felur í sér að skipulagsdagur verði færður frá 23. nóvember til 24. nóvember.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?