Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga

123. fundur 31. ágúst 2026 kl. 09:00 - 11:00 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Eva Björk Jónsdóttir formaður
  • Karel Ólafsson aðalmaður
  • Hulda Blöndal varaformaður
  • Anna Karen Gísladóttir aðalmaður
  • Petra Ruth Rúnarsdóttir aðalmaður
  • Erna Margrét Gunnlaugsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Katrín Huld Káradóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Marc Portal áheyrnarfulltrúi
  • Heiða Hrólfsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásta María Guðmundsdóttir Verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Ásta María Guðmundsdóttir Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla

2605007

Lagt fyrir nefndina staða verkefnisins stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla.

Atli Geir Júlíusson situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fræðslunefnd þakkar fyrir góða yfirferð á stöðu verkefnisins og fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið við undirbúning stækkunar Heilsuleikskólans Suðurvalla. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að verkefnið gangi samkvæmt áætlun og að áfram verði unnið markvisst að framgangi þess.

2.Aðgerðir vegna stöðu í leikskólamálum

2607015

Lagt fram minnisblað frá Björg Ástu Þórðardóttur bæjarstjóra um stöðu aðgerða í leikskólamálum.

Björg Ásta Þórðardóttir bæjarstjóri situr fundinn undir þessum málslið.
Fræðslunefnd þakkar bæjarstjóra fyrir yfirferðina, fagnar þeim aðgerðum sem lagðar eru til stuðnings barnafjölskyldum vegna tímabundinnar stöðu í leikskólamálum og telur mikilvægt að leita fjölbreyttra leiða til að mæta þörfum fjölskyldna þar til stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla hefur verið tekin í notkun.

Nefndin samþykkir tillögur að breytingu á reglum skv. framlögðu minnisblaði um leikskólanámsvist utan lögheimilis sveitarfélags og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar. Nefndin brýnir að unnið verði eftir skýrum verkferlum við mat á leiskólanámsvist utan lögheimilissveitarfélags.

3.Umsögn foreldraráðs Heilsuleikskólans Suðurvalla 2026-2027

2608086

Lögð fram til umsögn foreldraráðs Heilsuleikskólans Suðurvalla 2026-2027.
Fræðslunefnd þakkar foreldraráði Heilsuleikskólans Suðurvalla fyrir umsögnina og tekur undir ánægju ráðsins með metnaðarfullt starf leikskólans og þær áherslur sem fram koma í starfsáætlun skólaársins 2026-2027.

4.Greinagerð um innra mat Heilsuleikskólans Suðurvalla skólaárið 2025-2026

2608083

Lögð fram greinargerð um innra mat Heilsuleikskólans Suðurvalla skólaárið 2025-2026.
Fræðslunefnd þakkar fyrir góða yfirferð á innra mati Heilsuleikskólans Suðurvalla og fagnar þeim jákvæðu niðurstöðum sem þar koma fram. Nefndin tekur sérstaklega undir mikilvægi þess að niðurstöður matsins séu nýttar til áframhaldandi þróunar og umbóta í starfi leikskólans.

5.Starfsáætlun Heilsuleikskólan Suðurvalla 2026-2027

2608084

Lögð fram til kynningar starfsáætlun Heilsuleikskólans Suðurvalla 2026-2027.

Fræðslunefnd telur starfsáætlun Heilsuleikskólans Suðurvalla fyrir skólaárið 2026?2027 gefa góða mynd af því fjölbreytta starfi sem fram fer í leikskólanum. Áætlunin sýnir skýrar áherslur fyrir skólaárið og hvernig unnið er markvisst að því að skapa börnum gott og faglegt náms- og starfsumhverfi.

6.Málstefna Heilsuleikskólans Suðurvalla 2026-2027

2608085

Lögð fram málstefna Heilsuleikskólans Suðurvalla 2026-2027.
Fræðslunefnd fagnar framlagðri málstefnu Heilsuleikskólans Suðurvalla. Nefndin telur mikilvægt að skapa börnum sterkt og jákvætt íslenskt málumhverfi frá unga aldri og styður þær skýru áherslur sem fram koma í stefnunni um málörvun, samskipti og íslensku í daglegu starfi. Jafnframt er mikilvægt að áfram sé hlúð að fjölbreyttum tungumálabakgrunni barnanna og góðu samstarfi við foreldra.

7.Sérúrræði - námsver

2608088

Aðstoðarskólastjóri fer yfir stöðu sérúrræða og námsvers í Stóru-Vogaskóla.
Fræðslunefnd þakkar fyrir yfirferð á stöðu sérúrræða og námsvers í Stóru-Vogaskóla. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að fjölbreytt úrræði séu til staðar innan skólans til að mæta ólíkum þörfum nemenda og styðja við nám, líðan og farsæld þeirra.



8.ÍSAT - íslenska sem annað tungumál

2608087

Farið yfir stöðu ÍSAT - íslenska sem annað tungumáli í Stóru-Vogaskóla.
Fræðslunefnd þakkar aðstoðarskólastjóra fyrir yfirferðina. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að nemendur með íslensku sem annað tungumál fái þann stuðning og þau tækifæri sem þau þurfa til að ná góðum tökum á íslensku og taka virkan þátt í skólastarfinu.

Nefndin lýsir áhyggjur sínum á stöðu ÍSAT í Stóru-Vogaskóla og kallar eftir skriflegri ósk um úrbætur frá skólanum.

9.Flutningur frístundar í Stóru-Vogaskóla

2606044

Lagt fram minnisblað um stöðu flutnings frístundar í Stóru-Vogaskóla.
Formaður nefndarinnar fór yfir stöðu flutnings frístundar yfir í Stóru-Vogaskóla.

Nefndin fagnar því að frístundastarfið hafi verið fært inn í skólann, þar sem aðstaðan skapar aukna möguleika á fjölbreyttu og metnaðarfullu frístundastarfi. Jafnframt er lögð áhersla á þetta sé tímabundin staða og að öryggi, vellíðan og þarfir barnanna séu ávallt í fyrirrúmi.

Nefndin telur mikilvægt að fylgst verði vel með reynslunni af nýju fyrirkomulagi og að það verði áfram þróað með hagsmuni barnanna og starfsemi skólans að leiðarljósi.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Getum við bætt efni síðunnar?