Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga

122. fundur 30. júní 2026 kl. 16:00 - 17:15 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Eva Björk Jónsdóttir formaður
  • Karel Ólafsson aðalmaður
  • Petra Ruth Rúnarsdóttir aðalmaður
  • Hulda Blöndal varaformaður
  • Anna Karen Gísladóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hólmfríður J. Árnadóttir Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Hólmfríður J. Árnadóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Erindisbréf fræðslunefndar, siðareglur fyrir kjörna fulltrúa

2209032

Farið yfir erindisbréf fræðslunefndar og siðareglur kjörinna fulltrúa.
Borin var upp tillaga um að Hulda Birna Helgadóttir Blöndal yrði kjörin varaformaður fræðslunefndar. Tillagan var samþykkt samhljóða. Hulda skoðast því rétt kjörinn varaformaður nefndarinnar. Ákveðið var að fundartími nefndarinnar verður þriðja mánudag í mánuði kl. 9:00 - 10:30.

2.Staða á málefnum leikskóla

2606045

Bæjarstjóri og leikskólastjóri fara yfir stöðuna á leikskólamálum. Björg Ásta Þórðardóttir bæjarstjóri og Heiða Hrólfsdóttir skólastjóri Heilsuleikskólans Suðurvalla sitja fundinn undir þessum lið.
Nefndin þakkar bæjarstjóra og leikskólastjóra fyrir yfirferðina.

3.Staða á frístundarmálum.

2606044

Formaður fer yfir stöðuna á málefnum frístundar. Björg Ásta Þórðardóttir bæjarstjóri og Hilmar E. Sveinbjörnsson skólastjóri Stóru-Vogaskóla sitja fundinn undir þessum lið.
Fræðslunefnd ræddi stöðu og fyrirkomulag frístundaheimilisins. Nefndin telur að úrbóta sé þörf með tilliti til öryggis og aðbúnaðar barna og því brýnt að ráðist verði í úrbætur.

Fræðslunefnd felur formanni, sviðstjóra og skólastjóra að vinna úrbótaáætlun þar sem gerð er grein fyrir framkvæmd, tímasetningum og ábyrgð. Áætlunin skal lögð fyrir nefndina á næsta fundi með það að markmiði að úrbætur komi til framkvæmda fyrir upphaf næsta skólaárs.

Fundi slitið - kl. 17:15.

Getum við bætt efni síðunnar?