Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

12. fundur 21. september 2006 kl. 17:15 - 17:45 Iðndal 2

BÆJARSTJÓRN SVEITARFÉLAGSINS VOGA

 

FUNDARGERÐ

 

Árið 2006

12. fundur

 

Aukafundur haldinn í bæjarstjórn fimmtudaginn 21. september 2006,

kl. 1715 að Iðndal 2.

 

Mættir: Birgir Örn Ólafsson, Inga Rut Hlöðversdóttir, Hörður Harðarson, Anný Helena Bjarnadóttir, Inga Sigrún Atladóttir, Íris Bettý Alfreðsdóttir og Sigurður Kristinsson. Róbert Ragnarsson ritar fundargerð.

 

  1. Kjör tveggja fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

Bæjarstjórn samþykkir að fulltrúar Sveitarfélagsins Voga á XX. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verði Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri og Inga Sigrún Atladóttir, bæjarfulltrúi. Varamaður Róberts verður Birgir Örn Ólafsson, bæjarfulltrúi og varamaður Ingu Sigrúnar verður Sigurður Kristinsson, bæjarfulltrúi.

 

Samþykkt samhljóða.

 

Minnihlutinn leggur fram eftirfarandi bókun:

Á bæjarstjórnarfundi 27. júní þar sem kosið var um fulltrúa sveitarfélagsins á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga var réttmætri tillögu minnihlutans um að fá annan fulltrúa á þingið, felld. Í framhaldi leitaði minnihlutinn til félagsmálaráðuneytisins til að fá úrskurð um lögmæti þessara valdníðslu meirihlutans.

 

Úrskurðurinn var birtur þann 13. september og var skýr og afdráttarlaus. Í úrskurði félagsmálaráðuneytisins stendur m.a.:

 

Með hliðsjón af þeirri skyldu og ábyrgð sem hvílir á forseta bæjarstjórnar skv. 22. gr. sveitarstjórnarlaga um að málsmeðferð á fundum sveitarstjórnar fari löglega fram, telur ráðuneytið að forseti bæjarstjórnar hafi ekki gætt þess nægilega við meðferð málsins á fundinum 27. júní 2006 að kosning færi fram í samræmi við 31. gr. samþykktar um stjórn og fundarköp sveitarfélagsins. Að mati ráðuneytisins bar forseta að beina meðferð málsins í þann löglega farveg að um það færi fram hlutfallskosning og í því sambandi kalla eftir lista minnihluta með nafni a.m.k. eins aðalmanns og annars til vara.

 

Með hliðsjón af framangreindu telur ráðuneytið að ekki verði hjá því komist að ógilda niðurstöðu atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Voga á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga og beina því til bæjarstjórnar að endurupptaka málið hið fyrsta.

 

Meirihlutinn leggur fram eftirfarandi bókun:

Meirihlutinn vill taka það fram að minnihlutinn hafði aldrei beint samband við forseta eða bæjarstjóra til að ræða athugasemdir þeirra við afgreiðslu málsins, heldur fór erindið beint til ráðuneytisins og án þess að bæjarstjórn eða forseti fengi afrit af því. Um leið og forseta var málið ljóst, þ.e. þegar hann fékk bréf frá félagsmálaráðuneytinu í byrjun ágúst var haft samband við oddvita minnihluta. Þann 9.ágúst var boðin sátt í málinu sem fólst í því að taka það upp aftur. Þeirri sátt var hafnað og vildi minnihlutinn að ráðuneytið hlutaðist til um að málið yrði tekið upp aftur. Nú liggur niðurstaða ráðuneytisins fyrir, sem er sú sama og forseti bauð þann 9. ágúst, þ.e. endurupptaka málsins.

 

Minnihlutinn leggur fram eftirfarandi bókun:

Samkvæmt fundargerð þann 27. júní síðastliðinn er ljóst að minnihlutinn var ósáttur við afgreiðslu málsins og sættir voru ekki boðnar fyrr en meirihlutanum var ljóst að afgreiðslan var kærð til félagsmálaráðuneytisins.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.45

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?